Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að með kostun á fréttatengdu efni í þættinum Þrotabú Sigurplasts, í þáttaröðinni Atvinnulífið, sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut 8. febrúar 2018, hafi Hringbraut Fjölmiðlar ehf. brotið gegn 2. mgr. 42. gr. laga um fjölmiðla, um bann við kostun á fréttatengdu efni, og gegn 1. mgr. 42. gr. sömu laga, um óheimil áhrif kostenda á innihald og efnistök kostaðs efnis. Jafnframt hafi Hringbraut Fjölmiðlar ehf. brotið gegn 26. gr. laga um fjölmiðla, um lýðræðislegar grundvallarreglur, með því að gæta ekki að hlutlægni og nákvæmni í hinu fréttatengda efni.
Hefur Hringbraut Fjölmiðlum ehf. verið gert að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 500.000 kr. vegna brotsins. Við ákvörðun sektar var tekið mið af eðli brots og alvarleika þess.