Ákvörðun 4/2018 um brot á reglum um bann við áfengisauglýsingum, reglum um skýra aðgreiningu ritstjórnarefnis og auglýsinga, reglum um duldar auglýsingar, og reglum um auglýsingahlutfall innan klukkustundar í þættinum Þorrinn 2018, sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í janúar 2018

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að með umfjöllun um áfengar vörutegundir Ölgerðarinnar í þættinum Þorrinn 2018, sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut 23. janúar 2017, hafi Hringbraut Fjölmiðlar ehf. brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla, um bann við miðlun viðskiptaboða fyrir áfengi. Jafnframt hafi Hringbraut Fjölmiðlar ehf. brotið gegn 1. mgr. 37. gr. sömu laga, um skýra aðgreiningu ritstjórnarefnis og viðskiptaboða, og 2. mgr. 37. gr., um bann við duldum viðskiptaboðum. Þá hafi Hringbraut Fjölmiðlar ehf. með miðlun þáttarins brotið gegn 2. mgr. 41. gr. laga um fjölmiðla, um leyfilegt auglýsingahlutfall innan klukkustundar.

Hefur Hringbraut Fjölmiðlum ehf. verið gert að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 500.000 kr. vegna brotsins. Við ákvörðun sektar var tekið mið af eðli brots og því að Hringbraut hefur áður gerst brotleg við 1. og 2. mgr. 37. gr. og 2. mgr. 41. gr. laga um fjölmiðla, sbr. ákvörðun nefndarinnar nr. 2/2017, vegna þáttanna Atvinnulífið og Allt er nú til.

Ákvörðun 4/2018