Nýr bæklingur um börn og miðlanotkun

Hvernig má efla miðlalæsi barna með samtali foreldra og barna? Hvernig má hjálpa börnum að nálgast miðlaefni við sitt hæfi og hvetja þau til að framleiða sitt eigið efni? Hvernig má auka öryggi barna gagnvart skaðlegu miðlaefni og hvað er til ráða ef barnið lendir í neteinelti? Þessar og fleiri spurningar koma við sögu í nýjum bæklingi um börn og miðlanotkun sem fjölmiðlanefnd, SAFT og Heimili og skóli hafa gefið út.

Bæklingurinn ber nafnið Börn og miðlanotkun og er ætlaður foreldrum barna á grunnskólaaldri. Í honum er fjallað um sjónarmið sem gott er að hafa í huga í tengslum við miðlanotkun barna og ungmenna. Í hverjum kafla eru haldbærar leiðbeiningar sem settar eru upp með þeim hætti að foreldrar geti auðveldlega hafið samtal við börnin sín um hinar ýmsu hliðar miðlanotkunar; leyft þeim að kynnast ólíkum miðlum og nýta sér þau tækifæri sem þeir bjóða upp á en um leið kennt þeim að verjast skuggahliðum miðlanna og tileinka sér gagnrýna hugsun gagnvart þeim skilaboðum sem þar er að finna. Bæklingurinn er gefinn út með styrk frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Smellið hér til að lesa bæklinginn.