Fjölmiðlanefnd hefur birt ársskýrslu fyrir tímabilið 2011-2014 en nefndin tók til starfa 1. september 2011.
Í skýrslunni er meðal annars að finna ávarp framkvæmdastjóra, umfjöllun um verkefni fjölmiðlanefndar á tímabilinu, yfirlit yfir skráða fjölmiðla 2014, upplýsingar um skiptingu birtingafjár 2014 og aðgerðir fjölmiðla til að vinna gegn staðalímyndum kynjanna og auka aðgengi sjón- og heyrnarskertra að myndefni.
Þess skal getið að ársskýrsla fjölmiðlanefndar fyrir árið 2015 verður birt síðar á þessu ári.
Skýrslan er eingöngu gefin út á rafrænu formi og er aðgengileg hér: