Skúli Bragi Geirdal hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri hjá fjölmiðlanefnd og mun annast verkefni sem tengjast miðlalæsi og gerð nýrrar miðla- og upplýsingalæsisstefnu, ásamt framkvæmdaáætlun. Um er að ræða nýja stöðu hjá fjölmiðlanefnd sem felst annars vegar í stefnumótunarvinnu og hins vegar í verkefnisstjórnun til að fylgja stefnumálum eftir. Verkefnin munu miða að því að ná til fólks á öllum aldri til að auka færni þess í að nota samfélagsmiðla og leitarvélar og vera gagnrýnið á það hvaðan upplýsingar koma.
Skúli er fjölmiðlafræðingur að mennt, ásamt því að hafa stundað nám við grafíska hönnun í Myndlistarskólanum á Akureyri. Hann hefur starfað við dagskrárgerð, ritstjórn og hönnun hjá N4 frá árinu 2018 og kom þar að gerð um 400 sjónvarpsþátta, ásamt því að taka virkan þátt í stefnumótun á miðlinum. Þá hefur hann einnig annast stundarkennnslu í fjölmiðlafræðideild Háskólans á Akureyri, starfað sjálfstætt við hönnun og komið að nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi á ýmsum sviðum.
Fyrstu verkefni í starfi verkefnastjóra miðlalæsis munu snúa að úrvinnslu upplýsinga úr víðtækri spurningakönnun Maskínu fyrir fjölmiðlanefnd sem var framkvæmd í febrúar og mars 2021. Svarendur voru alls staðar að af landinu og á aldrinum 15 ára og eldri. Niðurstöðurnar verða gerðar aðgengilegar í nokkrum hlutum. Í fyrsta hlutanum er fjallað um fjölmiðlanotkun. Í öðrum hlutanum verður fjallað um hversu algengt það er að almenningur sjái falsfréttir og upplýsingaóreiðu á ólíkum miðlum og færni hans til að bera kennsl á slíkt efni. Í þriðja hlutanum verður fjallað um haturstal, neteinelti, hótanir og friðhelgi einkalífs. Í fjórða hluta verður síðan fjallað um mörk ritstjórnarefnis og auglýsinga og hvort almenningur þekki muninn á þessu tvennu. Netnotkun verður umfjöllunarefni fimmta hluta skýrslunnar. Þar verður m.a. fjallað um hversu löngum tíma fólk ver á netinu, um notkun tölvuleikja, um kaup á netinu og hvort netnotkun hafi áhrif á félagsleg samskipti fólks.