Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Úthlutunarnefnd skipa Árni Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður, Stefán Svavarsson endurskoðandi og Valgerður Anna Jóhannsdóttir, lektor við Háskóla Íslands. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.
Alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 917,5 milljónir kr. Þremur umsóknum var synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi skv. 62. gr. g. laga um fjölmiðla nr. 38/2011.
Í 62. gr. i. laga um fjölmiðla kemur fram að rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. Til úthlutunar voru 384,3 millj. kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 0,87% af heildarfjárhæð eða 3.337.804 kr. Til úthlutunar voru því 380.962.196 kr.
Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 25 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2022:
Árvakur hf. | 66.767.227 kr. |
Birtíngur útgáfufélag ehf. | 13.207.817 kr. |
Bændasamtök Íslands | 16.756.577 kr. |
Elísa Guðrún ehf. | 3.707.875 kr. |
Eyjasýn ehf. | 1.914.776 kr. |
Fótbolti ehf. | 5.744.382 kr. |
Fröken ehf. | 5.814.742 kr. |
Hönnunarhúsið ehf. | 997.180 kr. |
Kjarninn miðlar ehf. | 14.519.325 kr. |
Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. | 1.452.776 kr. |
MD Reykjavík ehf. | 4.642.775 kr. |
Myllusetur ehf. | 25.012.660 kr. |
N4 ehf. | 20.713.191 kr. |
Nýprent ehf. | 4.249.793 kr. |
Prentmet Oddi ehf. | 2.412.119 kr. |
Skessuhorn ehf. | 9.336.785 kr. |
Sólartún ehf. | 10.489.583 kr. |
Steinprent ehf. | 1.632.473 kr. |
Sýn hf. | 66.767.227 kr. |
Torg ehf. | 66.767.227 kr. |
Tunnan prentþjónusta ehf. | 2.117.748 kr. |
Útgáfufélag Austurlands ehf. | 3.660.962 kr. |
Útgáfufélagið ehf. | 4.306.578 kr. |
Útgáfufélagið Stundin ehf. | 22.273.029 kr. |
Víkurfréttir ehf. | 5.697.371 kr. |