Tæpur fjórðungur (23%) barna og ungmenna á aldrinum 9-18 ára hefur upplifað einelti á netinu, í símanum eða tölvuleikjum sl. 12 mánuði. Þá hafa 25% nemenda á sama aldri fengið ljótar athugasemdir í sinn garð á netinu, í tölvuleik eða á samfélagsmiðlum, 17% upplifað hótanir og 18% útilokanir frá hópum á netinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar um auglýsingalæsi og upplifun barna og ungmenna á netinu sem gefin var út í dag.

Skýrslan er sjöundi hluti af sjö og byggir á niðurstöðum könnunarinnar „Börn og netmiðlar“ sem Menntavísindastofnun framkvæmdi fyrir Fjölmiðlanefnd í 23 grunnskólum og 23 framhaldsskólum meðal grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum 9-18 ára . Er þetta í fyrsta sinn sem Fjölmiðlanefnd, í samstarfi við Menntavísindastofnun, birtir niðurstöður slíkrar umfangsmikillar könnunar. Fyrirhugað er að að gera sambærilega könnun á tveggja til þriggja ára fresti til að kanna miðlanotkun og færni barna og ungmenna þannig að hægt verði að bera saman niðurstöðurnar og hvernig notkun þróast.
Um einn af hverjum fjórum strákum á unglinga- eða framhaldsskólastigi hefur fengið hótanir einu sinni eða oftar á netinu
Um 22% grunnskólanema í 4.-10. bekk og 24% framhaldsskólanema hafa upplifað einelti á netinu, í símanum eða tölvuleikjum sl. 12 mánuði. Strákar eru líklegri til þess að segjast hafa upplifað einelti en stelpur, en kynjamunurinn er mestur á miðstigi (4.-7. bekk) þar sem 24% stráka og 15% stelpna hafa upplifað slíkt. Um einn af hverjum fjórum strákum á unglinga- eða framhaldsskólastigi hefur fengið hótanir einu sinni eða oftar á netinu og svipað hlutfall stelpna á sama aldri hefur upplifað útilokanir frá hópum á netinu.

Stúlkur líklegri til að hafa upplifað myndbirtingar sem olli þeim leiða eða reittu þær til reiði
Stelpur eru líklegri en strákar til að hafa upplifað myndbirtingar af þeim sem olli þeim leiða eða reittu þær til reiði. Í grunnskóla eru slíkar myndbirtingar rúmlega tvöfalt líklegri á unglingastigi, 8.-10. bekk (28%), en á miðstigi, 4.-7. bekk (12%).

Fjórir af hverjum tíu foreldrum barna í grunnskóla biðja þau um leyfi áður en myndum af þeim er deilt
Um 80% barna og ungmenn á aldrinum 9-18 ára segja foreldra sína deila oft eða stundum myndum af sér á Instagram, Facebook eða Snapchat. Foreldrar stúlkna (82%) eru líklegri til þess að deila myndum af þeim en foreldrar stráka (76%). Fjórir af hverjum tíu nemendum í grunnskóla segja foreldra sína hafa beðið um leyfi fyrir myndbirtingunni af þeim á samfélagsmiðlum, en í framhaldsskóla er hlutfallið þrír af hverjum tíu foreldrum sem báðu um leyfi. Um 17% barna og ungmenna á aldrinum 9-18 ára eru ósátt við mynddeilingar foreldra sinna af þeim eða þykir þær vandræðalegar en hlutfallið er hæst meðal stúlkna á efsta stigi grunnskóla (8.-10. bekk).
