Sexan er stuttmyndasamkeppni fyrir börn í 7. bekk um mörk og samþykki en einnig um tilurð, birtingarmyndir og afleiðingar stafræns ofbeldis. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar um nektarmyndir á meðal grunnskólabarna kemur fram að 51% stúlkna og 22% stráka hafa verið beðin um nektarmynd.
Fyrirkomulag Sexunnar er einfalt. Þátttakendur fá fræðslu og tækifæri til að búa til og skila inn tilbúinni stuttmynd, hámark 3 mínútur að lengd. Viðfangsefni keppninnar eru fjórar birtingarmyndir stafræns ofbeldis: samþykki, nektarmynd, tæling eða slagsmál ungmenna.
Að samkeppninni standa Jafnréttisstofa, Neyðarlínan, Ríkislögreglustjóri, Menntamálastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofa, Jafnréttisskóli Reykjavíkur, Fjölmiðlanefnd, og RÚV.
Við hvetjum ykkur sem eruð í 7. bekk eindregið til að taka þátt og festa þannig viðburðinn í sessi sem árlegan, skapandi vettvang til að takast á við stafrænt ofbeldi á meðal ungmenna. Nánari upplýsingar um keppnina má finna á heimasíðu Neyðarlínunnar.
Hvað er Sexan? // Hvernig tek ég þátt?
