Ríkisútvarpið uppfyllti almannaþjónustuhlutverk sitt árið 2021

Fjölmiðlanefnd hefur afhent menningar- og viðskiptaráðherra og stjórn Ríkisútvarpsins mat sitt á almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins fyrir árið 2021.

Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið nr. 23/2013 er Fjölmiðlanefnd ætlað að leggja sjálfstætt mat á það árlega hvort Ríkisútvarpið hafi uppfyllt almannaþjónustuhlutverk sitt.

Niðurstaða nefndarinnar er sú að Ríkisútvarpið hafi sinnt menningarlegu, lýðræðislegu og samfélagslegu hlutverki sínu í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í lögum um Ríkisútvarpið og þar með uppfyllt almannaþjónustuhlutverk sitt árið 2021.

Mat Fjölmiðlanefndar fer fram með hliðsjón af 3. gr. laga um Ríkisútvarpið og núgildandi samningi ráðherra menningarmála og Ríkisútvarpsins, sem hefur  gildistímann 1. janúar 2020 – 31. desember 2023.

Matið byggir auk þess á greinargerð Ríkisútvarpsins um fjölmiðlun í almannaþágu fyrir árið 2021, og á ársskýrslu og ársreikningi Ríkisútvarpsins fyrir árið 2021. Vinna við greinargerð Ríkisútvarpsins til Fjölmiðlanefndar tafðist og var hún afhent nefndinni 17. nóvember 2022. Síðustu viðbótargögn vegna matsins bárust frá Ríkisútvarpinu 21. desember 2022.

Hér má nálgast mat Fjölmiðlanefndar á almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins árið 2021.