Vakin er athygli á því að staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins geta nú sótt um styrk til menningar- og viðskiptaráðuneytis. Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 17. desember nk.
Til úthlutunar árið 2023 eru 7,5 milljónir kr.: 5 milljónir kr. frá menningar- og viðskiptaráðuneyti og 2,5 milljónir kr. frá innviðaráðuneyti vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun, Efling fjölmiðlunar í héraði.
Til skýringa skal þess getið að höfuðborgarsvæðið nær yfir sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef Stjórnarráðs Íslands.