Málþing um velferð barna í stafrænum heimi í Grósku 15. febrúar

Málþing um velferð barna í stafrænum heimi verður haldið í stóra fyrirlestrarsalnum í Grósku fimmtudaginn 15. febrúar nk. frá kl. 10:30-13:30. Málþingið er hluti af sérstakri fræðsluviku sem tileinkuð er upplýsinga- og miðlalæsi og verður haldin í annað sinn á Íslandi vikuna 12.-16. febrúar.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra mun opna málþingið með ávarpi áður en hinir ýmsu sérfræðingar í málefnum barna stíga á svið og miðla þekkingu sinni ásamt því að kynna niðurstöður úr nýlegum rannsóknum og spennandi verkefni sem framundan eru. Þá mun málþinginu ljúka með pallborðsumræðum þar sem framsækin ungmenni úr ólíkum áttum fá að eiga sviðið, svara spurningum úr sal og ræða miðlalæsi út frá ýmsum hliðum. Athugið að ekki verður streymt frá málþinginu en það verður tekið upp og gert aðgengilegt eftir að því lýkur.

Fundarstjóri er Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari.

Dagskrá málþingsins má finna hér fyrir neðan:

Þar sem takmarkað sætaframboð er í boði í salnum er mikilvægt að skrá sig tímanlega en það má gera með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan:

Tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi (TUMI) stendur að vikunni með styrk frá Fjölmiðlanefnd.

Eftirfarandi stofnanir, ráðuneyti, fyrirtæki og samtök eiga fulltrúa í tengslanetinu:

Fjölmiðlanefnd, SAFT & Heimili og skóli, Menntasvið Kópavogsbæjar, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Mixtúra, Kvikmyndamiðstöð, Landsbókasafn Íslands, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, RÚV – Ríkisútvarpið, Menntamálastofnun, Menntavísindasvið, Listaháskóli Íslands, Háskóli þriðja æviskeiðsins, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Endurmenntun HÍ, Símenntun HA, RANNUM – Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun, Barnaheill, Landsnefnd UNESCO, Persónuvernd, Þjónustumiðstöð Breiðholts, Samstarfshópur um stafræna borgaravitund, Upplýsing – félag bókasafns- og upplýsingafræða, Félag framhaldsskólabókasafna, Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna, AwareGO og RIFF- Reykjavík International Film Festival.