Opnað hefur verið fyrir umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla

Auglýst er eftir umsóknum einkarekinna fjölmiðla um rekstrarstuðning sem veittur verður á árinu 2024. Umsóknum skal skilað í gegnum vefgátt á vef Fjölmiðlanefndar, sem má finna hér að neðan og er umsóknarfrestur til og með 1. september 2024.

Með breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, sem samþykkt var á Alþingi 8. júni 2023, var Úthlutunarnefnd veitt heimild til að ákvarða rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla.

Í X. kafla B laga um fjölmiðla, sbr. frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla sem samþykkt var á Alþingi 8. júní 2023, og reglugerð nr. 700/2023 um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla, eru tilgreind skilyrði fyrir rekstrarstuðningi til einkarekinna fjölmiðla og einnig getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Er umsækjendum bent á að kynna sér þau og einnig hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn. Samkvæmt lögunum sér Fjölmiðlanefnd um umsýslu umsókna og veitir Úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð eftir nánara samkomulagi.

Til úthlutunar árið 2024 verða 557,2 millj. kr. að frádreginni þóknun fyrir störf Úthlutunarnefndar og öðrum kostnaði við umsýslu. Í 62. gr. i. laga um fjölmiðla kemur fram að rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjanda. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna.

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í gegnum vefgátt á vef Fjölmiðlanefndar fyrir miðnætti 1. september nk. Ef spurningar vakna varðandi útfyllingu umsóknar má senda fyrirspurn á postur@fjolmidlanefnd.is