Styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins

Vakin er athygli á því að staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins geta nú sótt um styrk til menningar- og viðskiptaráðuneytis. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 18. nóvember nk.

Til úthlutunar árið 2024 eru 12,5 milljónir kr.: 10 milljónir kr. frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu og 2,5 milljónir kr. frá innviðaráðuneytinu vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun, Efling fjölmiðlunar í héraði.

Til skýringa skal þess getið að höfuðborgarsvæðið nær yfir sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef Stjórnarráðs Íslands.