Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna sem veittur verður á árinu 2024. Umsóknum skal skilað til Fjölmiðlanefndar fyrir miðnætti föstudaginn 29. nóvember nk. á netfangið postur@fjolmidlanefnd.is. Upplýsingar um umsóknir má finna hér að neðan.
Í reglum nr. 1148/2024 um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna kemur fram að Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna sé ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlaveitum og stuðla að vernd íslenskrar tungu. Sjóðurinn er starfræktur tímabundið til þriggja ára. Styrkir eru veittir til talsetningar og/eða textunar á barnaefni á íslensku sem er til sýningar á innlendum áskriftarfjölmiðli. Miðað er við að efnið hafi verið frumsýnt síðastliðna 12 mánuði og er þar miðað við dagsetningu fyrrgreinds umsóknarfrests.
Í 5. gr. reglnanna eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu og í 6. gr. er getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Er umsækjendum bent á að kynna sér reglurnar í heild sinni og hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn. Samkvæmt reglunum sér Fjölmiðlanefnd um umsýslu umsókna.
Til úthlutunar árið 2024 verða 60 millj. kr. Menningar- og viðskiptaráðherra úthlutar fé úr sjóðnum.
Umsóknir um styrk skulu sendar til Fjölmiðlanefndar á netfangið postur@fjolmidlanefnd.is. Ekki þarf að fylla út sérstakt eyðublað en í erindi umsækjanda til Fjölmiðlanefndar skal koma fram heiti fjölmiðlaveitu, titill verks eða verka, kostnaðaruppgjör vegna talsetningar og/eða textunar verks eða verka, upplýsingar um bankareikning vegna greiðslu styrks, upplýsingar um tengilið vegna umsóknar ásamt fylgigögnum sem umsækjandi telur nauðsynlegt að fylgi með umsókn.
Njóti umsækjandi annarra styrkja fyrir verkefnið skal það koma fram í umsókn.
Umsóknum skal skilað á netfangið postur@fjolmidlanefnd.is fyrir miðnætti föstudaginn 29. nóvember nk. Ef spurningar vakna um umsóknarferlið má senda fyrirspurn á sama netfang.