Ákvörðun 1/2025: Viðskiptaboð fyrir áfengi á Vísi – 20. mars 2025

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sýn hf. hafi brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 með miðlun viðskiptaboða fyrir áfengi á Vísi.

Málið var tekið til efnislegrar meðferðar á grundvelli kvörtunar sem barst þann 10. júní 2024. Í kvörtuninni kom fram að á netmiðlinum Vísi hafi birst auglýsing frá Víking Brugghúsi fyrir Víking sem kvartandi teldi vera auglýsingu fyrir áfengi.

Í ákvörðun Fjölmiðlanefndar kemur fram að umrædd auglýsing teljist til viðskiptaboða fyrir áfengi og að með miðlun þeirra á Vísi hafi Sýn hf., sem fjölmiðlaveita netmiðilsins, þar með brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla. Samkvæmt ákvæðinu eru viðskiptaboð fyrir áfengi óheimil.

Fjölmiðlanefnd ákvað að leggja stjórnvaldssekt á Sýn hf. vegna málsins. Við þá ákvörðun var tekið mið af því að Sýn hf. hafi margítrekað brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla um bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi. Jafnframt var litið til eðlis brots Sýnar hf. og atvika máls að öðru leyti. Taldi Fjölmiðlanefnd hæfilegt að sektin næmi 2.000.000 kr.

Ákvörðun 1/2025: Viðskiptaboð fyrir áfengi á Vísi – 20. mars 2025