Öruggt íþrótta- og æskulýðsstarf í sumar

Í sumar taka mörg börn þátt í viðburðum og æskulýðsstarfi víða um land. Mikilvægt er að þeir sem koma að því að skipuleggja og framkvæma slíkt starf séu meðvitaðir um ábyrgð sína, þekki einkenni ofbeldis og viti hvert skal leita ef grunur vaknar um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi.

Samstarfshópur á vegum Barna- og fjölskyldustofu, Embættis landlæknis, Heimili og skóla, Jafnréttisstofu, lögreglunnar, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Neyðarlínunnar, SAFT – Fjölmiðlanefndar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur tekið saman gagnlegt upplýsingabréf.

Í bréfinu má finna:

  • fræðsluefni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni,
  • gátlista fyrir ráðningar,
  • leiðbeiningar um öflun upplýsinga úr sakaskrá,
  • og samræmda viðbragðsáætlun æskulýðsstarfs.

Smelltu á myndirnar hér að neðan til að opna PDF sem hægt er að prenta út:

Ef grunur vaknar um brot gegn barni skal ávallt tilkynna til 112barnaverndar og/eða lögreglu.

Nánari upplýsingar veita:
Kristín Skjaldardóttir – samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is

Alfa Dröfn Jóhannsdóttir – alfa@samband.is

Barna- og fjölskyldustofa  – bofs@bofs.is