Ákvörðun 2/2025: Viðskiptaboð fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi á Símanum Sport – 14. ágúst 2025

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hf. hafi brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 með miðlun viðskiptaboða fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi á Símanum Sport.

Málið var tekið til efnislegrar meðferðar á grundvelli kvörtunar sem barst þann 20. mars 2024 frá Íslenskum getraunum þar sem vakin var athygli á auglýsingum sem birst höfðu á Símanum Sport fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi Rizk. Starfsemin hefur ekki starfsleyfi á Íslandi.

Í ákvörðun Fjölmiðlanefndar kemur fram að viðskiptaboðin sem birtust á Símanum Sport á tímabilinu frá 21. desember 2023 til 26. mars 2024 teljist til viðskiptaboða fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi sem ekki hefur leyfi lögum samkvæmt hér á landi. Með miðlun þeirra hafi Síminn hf., sem fjölmiðlaveita Símans Sport, þar með brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla sem bannar viðskiptaboð fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi sem ekki hefur leyfi lögum samkvæmt hér á landi.

Fjölmiðlanefnd ákvað að leggja stjórnvaldssekt á Símann hf. vegna málsins. Við þá ákvörðun var tekið mið af því að Síminn hefur ekki áður brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla um bann við viðskiptaboðum fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi sem ekki hefur leyfi lögum samkvæmt hér á landi. Jafnframt var litið til eðlis brotsins og atvika máls að öðru leyti. Taldi Fjölmiðlanefnd hæfilegt að sektin næmi 1.000.000 kr.

Ákvörðun 2/2025: Viðskiptaboð fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi á Símanum Sport – 14. ágúst 2025