Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Úthlutunarnefnd skipa Anna Mjöll Karlsdóttir, lögfræðingur (formaður), samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, Gunnar Þór Tómasson, löggiltur endurskoðandi, samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.
Alls bárust 30 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla innan umsóknarfrests og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 1.000.220.781 kr. Einni umsókn var vísað frá á grundvelli 5. mgr. 62. gr. i laga um fjölmiðla nr. 38/2011, eins og þeim var breytt með lögum nr. 66/2025, þar sem umsóknin barst að umsóknarfresti liðnum. Þá var tveimur umsóknum synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi samkvæmt 62. gr. g laga um fjölmiðla nr. 38/2011, sbr. lög nr. 66/2025.
Í 62. gr. i laga um fjölmiðla nr. 38/2011, sbr. lög nr. 66/2025, kemur fram að rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda. Stuðningur til hvers umsækjanda geti þó ekki orðið hærri en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. Auk þess fá staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins 20% álag á upphæð styrks. Til úthlutunar voru 550 milljónir kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, sérfræðiaðstoðar, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 1,09% af heildarfjárhæð eða 5.979.027 kr. Til úthlutunar voru því 544.020.973 kr. og skiptast þær á milli 28 fjölmiðlaveitna.
Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 28 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2025:
Árvakur hf. | 103.905.866 kr. |
Birtíngur útgáfufélag ehf. | 11.412.717 kr. |
Brotkast ehf. | 7.296.558 kr. |
Eigin herra ehf. | 7.096.346 kr. |
Elísa Guðrún ehf. | 6.544.050 kr. |
Eyjasýn ehf. | 3.608.423 kr. |
Farteski Útgáfufélag ehf. | 5.759.018 kr. |
Fjölmiðlatorgið ehf. | 38.854.610 kr. |
Fótbolti ehf. | 11.518.761 kr. |
Fröken ehf. | 12.986.765 kr. |
Hönnunarhúsið ehf. | 1.573.081 kr. |
Iceland Review ehf. | 14.785.571 kr. |
Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. | 8.569.702 kr. |
Mosfellingur ehf. | 2.057.440 kr. |
Myllusetur ehf. | 42.424.679 kr. |
Nýprent ehf. | 5.125.032 kr. |
Prentmet Oddi ehf. | 5.209.703 kr. |
SagaNet – Útvarp Saga ehf. | 8.369.710 kr. |
Sameinaða útgáfufélagið ehf. | 77.699.850 kr. |
Samstöðin ehf. | 11.571.060 kr. |
Skessuhorn ehf. | 16.599.863 kr. |
Skrautás ehf. | 2.035.388 kr. |
Steinprent ehf. | 4.301.743 kr. |
Sýn hf. | 103.905.866 kr. |
Tunnan prentþjónusta ehf. | 2.882.329 kr. |
Útgáfufélag Austurlands ehf. | 7.348.817 kr. |
Útgáfufélagið ehf. | 7.402.678 kr. |
Víkurfréttir ehf. | 13.175.346 kr. |