Varðberg, Fjölmiðlanefnd, dómsmálaráðuneytið og utanríkisráðuneytið, boða til opins fundar á Hótel Reykjavík Natura, miðvikudaginn 4. mars 2026, kl. 16:00–18:00, um upplýsingaóreiðu og netógnir í aðdraganda kosninga.
Hlekkur á fundinn er hér.
Á fundinum verður leitað svara við því hvernig upplýsingaóreiða, áróður, netárásir og markviss erlend afskipti geta ógnað lýðræðislegum ferlum og hvaða varnir og viðbrögð eru raunhæf fyrir Ísland. Kynnt verður m.a. ný rannsókn um viðhorf almennings til upplýsingaóreiðu.
Dagskrá:
16.00 – Davíð Stefánsson fundarstjóri býður gesti velkomna.
16.05 – Ávarp: Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
- Logi Már Einarsson er menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra í ríkisstjórn Íslands og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Hann er menntaður arkitekt og hefur setið á Alþingi fyrir Norðausturkjördæmi.
16:15 – Hugleiðingar frá Carl Heath, sérfræðingi í stafrænum viðnámsþrótti hjá Stofnun um sálræn varnarmál í Svíþjóð (Myndigheten för psykologiskt försvar, MPF).
- Carl Heath er sænskur sérfræðingur í stafrænum viðnámsþrótti og yfirrannsakandi og teymisstjóri í stafrænum viðnámsþrótti hjá RISE en það er ríkisrekið sænskt rannsóknasetur sem sameinar fjölda vísinda- og tæknistofnana til að styðja við nýsköpun, öryggi og samfélagslega þróun. Það starfar á mörgum sviðum – frá stafrænum viðnámsþrótti og netöryggi til orkumála, iðnaðarþróunar og samfélagslegra innviða. Heath starfar með Sænsku varnarmálastofnuninni um rannsóknir og fræðslu á sviði upplýsingaógnar og lýðræðis í stafrænum heimi.
16.25 – Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður hjá LEX lögmannsstofu og sérfræðingur á sviði tækniréttar, hugverkaréttar og persónuverndar.
- Lára Herborg Ólafsdóttir er lögmaður, LL.M., og meðeigandi hjá LEX lögmannsstofu, þar sem hún er meðal fremstu sérfræðinga landsins í tæknirétti, hugverkarétti og persónuvernd. Hún starfar einnig á sviðum fjarskiptalögfræði og gagnaréttar, með sérþekkingu á stafrænum innviðum, gagnanotkun og regluverki nýrrar tækni.
16.45 – Hugleiðingar frá Martha Turnbull– Sérfræðingi á sviði þjóðaröryggis- og upplýsingaáhrifa við Öndvegissetur Evrópu um fjölþátta ógnir í Helsinki í Finnlandi.
- Martha Turnbull er breskur þjóðaröryggis- og upplýsingaáhrifasérfræðingur sem leiðir vinnu hagsmunaaðila um áhrif fjölþáttaógna hjá Öndvegissetri Evrópu um fjölþátta ógnir (Hybrid CoE). Í því hlutverki hefur Martha umsjón með verkefnum sem snerta upplýsingaóreiðu, fælingaráhrif, óháða aðila (non-state actors), afskipti af kosningum og Vestur-Balkanskaga. Martha er fulltrúi utanríkis-, samveldis- og þróunarráðuneytis Bretlands hjá Hybrid Center of Excellence, þar sem hún hefur unnið síðustu 15 árin að ýmsum þjóðaröryggismálum, þar á meðal fjölþátta ógnum og aðgerðum til að verjast hryðjuverkum.
16.55 – Haukur Brynjarsson og Skúli Bragi Geirdal: Áróður og almenningur – Ný rannsókn um viðhorf fólks til upplýsingaóreiðu.
- Fjölmiðlafræðingarnir Haukur Brynjarsson og Skúli Bragi Geirdal starfa hjá Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands. Netvís er landsbundin miðstöð sem annast fræðslu og vitundarvakningu, stendur fyrir rannsóknum og útgáfu skýrslna um félagslegt netöryggi. Netvís starfar náið með öðrum stofnunum og félögum sem tengjast netöryggi með það að markmiði að samhæfa aðgerðir og valdeflingu almennings gagnvart netógnum.
17:15 – Viðtal: Eskil Grendahl Sivertsen – Um erlend afskipti af norsku stórþingskosingunum 2025.
- Eskil Grendahl Sivertsen er helsti sérfræðingur Norðmanna á sviði áhrifaaðgerða, stafrænnar áróðursstarfsemi og hugræns hernaðar. Hann er sérfræðingur í upplýsingarekstri, fjölþáttaógnunum og stefnumótandi samskiptum hjá norsku varnarrannsóknastofnuninni (Forsvarets forskningsinstitutt FFI), sem er helsta varnarrannsóknastofnun landsins. Hann hefur áratuga reynslu af því að greina og vinna gegn áhrifarekstri ríkja, rangfærslum og öðrum aðferðum sem beinast að lýðræðislegum samfélögum.
17.30 – Pallborðsumræður
Þátttakendur: Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar; Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og fyrrverandi utanríkisráðherra; og Finnbogi Jónasson, deildarstjóri greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, stýrir umræðum.
- Ástríður Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, skipuð í embættið árið 2022. Hún er lögfræðingur að mennt með framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu (MPA) og hefur starfað lengi innan íslenskrar stjórnsýslu, einkum á sviðum sem tengjast kosningum, stjórnsýslu og opinberri þjónustu. Í starfi sínu hjá Landskjörstjórn leiðir hún daglegan rekstur landskjörstjórnar sem hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga og annast framkvæmd kosningalaga.
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er íslenskur lögfræðingur og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kjörin á Alþingi frá árinu 2016. Hún hefur gegnt fjölda ráðherraembætta og var meðal annars utanríkisráðherra 2021–2023 og aftur 2024.
- Finnbogi Jónasson er aðstoðaryfirlögregluþjónn og deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann hefur starfað þar í rúman áratug, tekið þátt í alþjóðlegu öryggissamstarfi og leiðir greiningar á ógn, áhættu og innra öryggi Íslands, þar á meðal áhrifum upplýsingaóreiðu á samfélagslegt viðnám.
- Sigríður Dögg Auðunsdóttir er blaðamaður og formaður Blaðamannafélags Íslands sem hefur verið áberandi talsmaður tjáningarfrelsis og réttinda blaðamanna.
17.55 – Samantekt og lokaorð: Elfa Ýr Gylfadóttir er framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
- Elfa Ýr Gylfadóttir er framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, stjórnvalds sem hefur eftirlit með fjölmiðlum á Íslandi, sér um leyfisveitingar, reglusetningu og að fylgja eftir fjölmiðlalögum, þ.m.t. að efla miðlalæsi í samfélaginu. Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands heyrir undir Fjölmiðlanefnd.
18.00 – Dagskrá lokið
Skráning þátttöku er nauðsynleg – Smelltu hér til að skrá þig
Fundurinn er opinn en skráning þátttöku er nauðsynleg.
Mikilvægt er að mæta tímanlega í ljósi takmarkaðs sætafjölda. Húsið opnar kl. 15.30 og viðburður hefst kl. 16:00.
Hægt verður að fylgjast með viðburðinum í gegnum streymi á vef Varðbergs vardberg.is og í helstu fjölmiðlum. Fundurinn, sem er öllum opinn meðan húsrúm leyfir, fer fram á íslensku og ensku.