Ákvörðun Fjölmiðlanefndar nr. 1/2026 vegna beiðni Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um andsvör á grundvelli 36. gr. laga um fjölmiðla vegna umfjöllunar Fréttarinnar

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Fréttin ehf., fjölmiðlaveita netmiðilsins Fréttin, skuli birta andsvör Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur vegna umfjöllunar miðilsins um hana.

Málið var tekið til efnislegrar meðferðar á grundvelli kvörtunar frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur vegna umfjöllunar Fréttarinnar um athugasemd sem hún skrifaði undir færslu í tilteknum umræðuhópi á Facebook. Í kvörtuninni var vísað til 36. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um rétt til andsvara. Að mati kvartanda hefði Fréttin ekki orðið við beiðni hennar um leiðréttingu eða beiðni hennar um að koma á framfæri andsvörum vegna umfjöllunar miðilsins.

Í ákvörðun Fjölmiðlanefndar kemur fram að kvartandi hafi að mati nefndarinnar leitt að því líkur að lögmætir hagsmunir hennar hafi beðið tjón af því að rangt hafi verið farið með staðreyndir í umfjöllun Fréttarinnar, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga um fjölmiðla. Fréttin ehf. hafi ekki brugðist með fullnægjandi hætti við beiðni kvartanda um andsvör þegar fyrir lá að hún vildi koma þeim á framfæri, sbr. 4. mgr. 36. gr. laga um fjölmiðla. Var Fréttinni ehf. gert að birta andsvör Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur á vef Fréttarinnar, Fréttin.is. Voru eftirfarandi andsvör birt á vefnum þann 13. febrúar sl.:

„Í umfjöllun Fréttin.is þann 17. nóvember 2025 eru mér eignuð ummæli sem ég hef ekki látið falla. Þar er meðal annars fullyrt að ég segi stúlkum og skólastúlkum að þær eigi að „þegja og sætta sig við karlmenn í kvennaklefa“ og að ég beri ekki virðingu fyrir konu sem varð fyrir kynferðisofbeldi. Ég hef ekki tjáð mig með þessum hætti og þetta er ekki mín afstaða. Í þeirri umræðu sem vísað er til skrifaði ég eingöngu eftirfarandi: „Þú getur farið í sérklefa ef þér þykir óþægilegt að vera í klefa með öðrum fjölbreyttum kvennalíkömum.“ ásamt því sem ég sagði í símtali við ritstjóra að trans konur mættu nota búningsklefa fyrir konur, enda séu þær konur. Fyrrnefndar fullyrðingar í greininni eru því rangar.“

Ákvörðun Fjölmiðlanefndar nr. 1/2026