Ákvörðun 2/2026: Sýning á efni sem ekki er við hæfi barna fyrir vatnaskil á sjónvarpsstöðinni SÝN
Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sýn hf. hafi brotið gegn 1. og 2. mgr. 28. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011, um vernd barna gegna skaðlegu efni, með sýningu þáttar úr þáttaröðinni Knutby sunnudaginn 31. ágúst 2025 kl. 20:55, þáttar úr þáttaröðinni Grantchester mánudaginn 1. september 2025 kl. 20:25 og þáttar úr þáttaröðinni S.W.A.T. fimmtudaginn 4. september 2025 kl. 20:05 á sjónvarpsstöðinni SÝN. Þáttaraðirnar hafa fengið aldursmerkinguna „12“ samkvæmt hollenska aldursmatskerfi Kijkwijzer frá NICAM í Hollandi og eru því ekki taldar við hæfi barna yngri en 12 ára.
Samkvæmt a-lið 2. mgr. 28. gr. laga um fjölmiðla er heimilt eftir kl. 22 föstudags- og laugardagskvöld og eftir kl. 21 önnur kvöld vikunnar og til kl. 5 á morgnana að miðla efni í línulegri dagskrá sem ekki er talið við hæfi barna að því tilskildu að á undan því sé birt skýr viðvörun og það sé auðkennt með sjónrænu merki, þegar um miðlun myndefnis er að ræða, allan þann tíma sem efninu er miðlað. Ákvæðið hefur verið kallað vatnaskilaákvæðið þar sem skilgreind tímasetning markar „vatnaskil“ varðandi það hvenær heimilt er að sýna efni sem ekki er við hæfi barna. Fjölmiðlanefnd hefur túlkað ákvæðið með þeim hætti að óheimilt sé að sýna myndefni sem fengið hefur aldursmerkinguna „12“ og hærra fyrr en eftir kl. 22 á föstudags- og laugardagskvöldum og eftir kl. 21 á virkum dögum og sunnudögum. Í ljósi þessa taldi Fjölmiðlanefnd að óheimilt hefði verið að miðla framangreindum þáttum, sem ekki eru við hæfi barna yngri en 12 ára, í línulegri dagskrá fyrr en eftir kl. 21 á umræddum dögum.
Fjölmiðlanefnd ákvað að leggja stjórnvaldssekt á Sýn hf. Nefndin taldi hæfilegt að sektin næmi 500.000 kr. Við þá ákvörðun var tekið mið af eðli brotsins og atvika máls að öðru leyti.