
Þær tækniframfarir sem orðið hafa á síðustu árum hafa haft veruleg áhrif á fjölmiðlun og gert mörkin á milli fjölmiðlunar í hefðbundnum skilningi og annars konar miðlunar efnis óljósari. Þegar lög um fjölmiðla nr. 38/2011 (hér eftir lög um fjölmiðla) tóku gildi voru hlaðvörp fátíðari og smærri í sniðum en þau eru í dag. Flest þeirra voru í líkingu við hefðbundnar bloggsíður og algengt var að hlaðvörp tilheyrðu eða væru tengd stærri fjölmiðlum. Á síðustu árum hafa einstaklingar í auknum mæli sett á laggirnar sín eigin hlaðvörp, enda hefur það aldrei verið eins auðvelt. Hlaðvörp njóta sífellt meiri vinsælda og hefur markaðshlutdeild þeirra aukist í takti við það. Mörg þeirra hafa nú fjölda kostenda og/eða auglýsinga. Í sumum tilvikum hlusta þúsundir á hvern þátt og eru slík hlaðvörp í beinni samkeppni við aðra fjölmiðla um hlustendur og kostendur.
Fjölmiðlanefnd hafa borist fyrirspurnir, ábendingar og kvartanir vegna auglýsinga í íslenskum hlaðvörpum sem vakið hafa upp spurningar um starfsemi hlaðvarpa. Í ljósi leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, sem m.a. er mælt fyrir um í 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvað Fjölmiðlanefnd að gefa út leiðbeiningar í mars 2021 um skráningu hlaðvarpa hjá nefndinni á grundvelli laga um fjölmiðla. Leiðbeiningarnar hafa nú verið uppfærðar til samræmis við lagabreytingar. Eru stjórnendur hlaðvarpa og aðrir sem koma að framleiðslu þeirra hvattir til kynna sér leiðbeiningarnar.
Leiðbeiningar um skráningu hlaðvarpa hjá Fjölmiðlanefnd í heild sinni á PDF-formi
Um hvaða starfsemi gilda lög um fjölmiðla?
Samkvæmt 3. gr. laga um fjölmiðla gilda þau um alla fjölmiðla og fjölmiðlaveitur sem hafa staðfestu hér á landi eða miðla efni sem ætlað er almenningi hér á landi, að teknu tilliti til ákvæðis 4. gr. Þau gilda því um allt hljóð- og myndefni í læstri eða ólæstri dagskrá, línulegri dagskrá eða eftir pöntun óháð þeirri dreifileið sem valin hefur verið. Jafnframt gilda þau um allt ritefni hvort sem því er miðlað á prentuðu eða öðru sambærilegu formi eða með rafrænum hætti. V. kafli A gildir um mynddeiliveitur sem hafa staðfestu hér á landi eða miðla efni sem ætlað er almenningi hér á landi, að teknu tilliti til ákvæðis 4. gr. a.
Falla hlaðvörp undir lög um fjölmiðla?
Hlaðvörp geta fallið undir lög um fjölmiðla að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og metur Fjölmiðlanefnd hvert tilvik fyrir sig. Mati Fjölmiðlanefndar er lýst nánar hér á eftir. Hugtakið hlaðvarp er sérstaklega skilgreint í 22. tölul. 2. gr. laga um fjölmiðla sem það þegar dagskrárliðir í heild eða að hluta í formi hljóðskráa eru boðnir almenningi til niðurhals. Hlaðvarp telst til hljóðmiðlunar eftir pöntun, sbr. athugasemdir við hugtakið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um fjölmiðla og 25. tölul. 2. gr. laga um fjölmiðla.
Um það hvort hlaðvörp geti talist fjölmiðlar í skilningi laga um fjölmiðla hefur verið fjallað í dómum héraðsdómstóla. Í Hérd. Rvk. 31. mars 2023 (E-4425/2022) (Eigin Konur) kom m.a. fram að „við úrlausn málsins [bæri] að horfa til þess að hlaðvarpið, sem stefnda stjórnaði og ritstýrði, telst vera fjölmiðill í skilningi laga nr. 38/2011, sbr. 13. tölulið 2. gr. laganna, og fellur undir gildissvið 3. gr. laganna“. Í Hérd. Reykn. 18. október 2022 (E-1699/2021) (The Mike Show) kom m.a. fram að „hlaðvörp [gætu] í eðli sínu talist fjölmiðlar“, sbr. skilgreiningar hugtakanna fjölmiðill í 13. tölul. 2. gr. laga um fjölmiðla og ritstjórn í 35. tölul. (nú 38. tölul.) 2. gr. sömu laga.
Til hvaða atriða lítur Fjölmiðlanefnd við mat á því hvort hlaðvarp teljist fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla?
Við mat á því hvort hlaðvarp teljist fjölmiðill og sé þar með skráningarskylt hjá Fjölmiðlanefnd er litið til þess hvort hlaðvarpið uppfylli skilyrði laga um fjölmiðla eins og áður segir. Samkvæmt 13. tölul. 2. gr. laga um fjölmiðla er „fjölmiðill“ aðili eða lögaðili sem veitir fjölmiðlaþjónustu með reglubundnum hætti. Hugtakið „fjölmiðlaþjónusta“ er þjónusta þar sem megintilgangur eða aðskiljanlegur hluti hennar er tileinkaður miðlun á efni, undir ritstjórnarlegri ábyrgð fjölmiðilsins, til almennings í þeim tilgangi að upplýsa, fræða eða skemmta, sbr. 15. tölul. 2. gr. sömu laga. Í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því sem varð að lögum um fjölmiðla kemur fram að til fjölmiðla teljast meðal annars dagblöð og tímarit, ásamt fylgiritum þeirra, netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar. Þar kemur jafnframt fram að hugtakið „fjölmiðill“ nái til allra tegunda miðla svo framarlega sem ritstjórn sé fyrir hendi. Inntak hugtaksins „ritstjórn“ hafi því grundvallarþýðingu við mat á því hvort um fjölmiðil í skilningi laganna er að ræða. Hugtakið „ritstjórn“ felur í sér stjórn á vali og skipan þess efnis sem miðlað er, sbr. 38. tölul. 2. gr. laganna. Fjölmiðlaveita telst hafa ritstjórn á efni þegar hún hefur forræði á því efni sem miðlað er sem og skipulagningu þjónustunnar að öðru leyti.
Samkvæmt framangreindu þarf hlaðvarp því að uppfylla eftirfarandi svo það teljist fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla:
- efnið þarf að lúta ritstjórn
- efninu þarf að vera miðlað með reglubundnum hætti
- efninu þarf að vera miðlað til almennings
- efninu þarf að vera miðlað í þeim tilgangi að upplýsa, fræða eða skemmta
Þrátt fyrir að uppfylla framangreint er ekki sjálfgefið að hlaðvarp teljist fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla. Á því það sama við hlaðvörp eins og aðra miðla, t.d. vefmiðla. Í 5. mgr. 2. gr. starfsreglna Fjölmiðlanefndar nr. 238/2025 kemur t.a.m. fram að persónubundnar bloggsíður falli almennt utan hugtaksins fjölmiðill í skilningi laganna. Þá falla einstaklingsbundin og persónuleg samskipti á netinu, t.d. á vettvangi Facebook, einnig utan hugtaksins. Ólíklegt verður því að teljast að hlaðvarp sem svipar til bloggsíðu að efni til myndi teljast fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla þótt það uppfylli skilyrði laganna. Auk skilyrða laganna lítur Fjölmiðlanefnd einnig til annarra atriða við mat á því hvort miðill teljist fjölmiðill eða ekki og eigi því að skrá sig hjá nefndinni. Í 4. mgr. 2. gr. starfsreglna Fjölmiðlanefndar segir m.a. eftirfarandi:
Það er skýr vísbending um að miðlun efnis falli undir hugtakið fjölmiðill þegar fjölmiðlaveita hefur það að atvinnu að miðla fjölmiðlaefni og ber þannig ábyrgð á ritstjórnarlegri skipan og endanlegri samsetningu fjölmiðilsins. Þjónusta sem ekki hefur þann megintilgang fellur á hinn bóginn sjaldnast undir hugtakið fjölmiðil í skilningi laganna. Meðal þeirra atriða sem litið er til við mat á því hvort um fjölmiðil er að ræða er hvort fjárhagslegur ávinningur er af starfseminni, m.a. með miðlun viðskiptaboða og/eða áskrift að efni, hvers konar efni er miðlað og hver miðlar efninu. Hljóðvarps- eða sjónvarpsrásir eða önnur fjölmiðlaþjónusta undir ritstjórnarábyrgð fjölmiðlaveitu getur talist vera fjölmiðlaþjónusta og þar af leiðandi fjölmiðill, þó svo að þjónustan sé veitt á öðrum vettvangi, t.d. á vef eða á mynddeiliveitu, sem ekki lýtur ritstjórnarlegri ábyrgð og er því ekki fjölmiðill. Hér er átt við þegar aðili eða lögaðili nýtir sér þjónustu, eins og t.d. YouTube, Facebook eða Instagram til að dreifa fjölmiðlaefni sínu. Uppfylli slík miðlun önnur skilyrði laga sem eiga við í þessu sambandi telst hún til fjölmiðlaþjónustu í skilningi laga um fjölmiðla.
Örðugt er að setja fram tæmandi talningu atriða sem áhrif geta haft á það hvort miðill teljist fjölmiðill eða ekki í skilningi laga um fjölmiðla. Upp geta komið ýmis takmarkatilvik sem leysa þarf úr hverju sinni á grundvelli heildstæðs mats og því geta önnur atriði komið til skoðunar en finna má í starfsreglum Fjölmiðlanefndar. Í tilviki hlaðvarpa eru það þó helst eftirfarandi atriði sem Fjölmiðlanefnd horfir til þegar skilyrði laga um fjölmiðla eru uppfyllt:
- Er fjárhagslegur ávinningur af miðlun efnis hlaðvarpsins með:
- Auglýsingum, kostunum eða annars konar viðskiptaboðum?
- Áskrift eða annars konar miðlun efnis gegn gjaldi?
- Annars konar tekjuöflun, eins og styrkjum?
Ef fjárhagslegur ávinningur er af miðlun hlaðvarps er það sterk vísbending um að skrá beri hlaðvarpið sem fjölmiðil hjá Fjölmiðlanefnd. Nefndin metur þó alltaf hvert tilvik fyrir sig enda er hvorki hægt að sjá fyrir þau fjölmörgu atriði sem geta komið til greina við á mat því hvort um fjölmiðil er að ræða né þær nýju miðlunarleiðir og tegundir fjölmiðla sem framtíðin ber í skauti sér. Þessi nálgun endurspeglar vilja löggjafans eins og hann birtist í lögskýringargögnum með frumvarpi því sem varð að lögum um fjölmiðla. Til viðbótar við viðmiðið um fjárhagslegan ávinning hefur Fjölmiðlanefnd einnig eftirfarandi atriði til hliðsjónar við mat sitt, en ekki er um tæmandi talningu að ræða:
- Hvers konar efni hlaðvarpið miðlar (ef um sambærilegt efni er að ræða og finna mætti í öðrum fjölmiðlum eru líkur til þess að hlaðvarpið teljist skráningarskylt)
- Hver miðlar efni hlaðvarpsins (hlaðvörp ríkisstofnana, félagasamtaka og stéttarfélaga myndu t.d. í flestum tilvikum ekki teljast skráningarskyld, sbr. nánari umfjöllun hér neðar)
- Hvort hlaðvarpið sé hluti af starfsemi fjölmiðlaveitu sem er þegar skráð hjá Fjölmiðlanefnd (í slíkum tilvikum þarf ekki að skrá hlaðvarpið sérstaklega)
- Útbreiðsla hlaðvarpsins og hlustun, ef slíkar upplýsingar liggja fyrir
Þegar litið er til þess hver miðlar efni hlaðvarpsins skiptir máli í hvaða tilgangi miðlunin er, sbr. fyrrgreinda umfjöllun um hvort fjárhagslegur ávinningur sé af miðlun efnisins. Sem dæmi telur Fjölmiðlanefnd að upplýsingamiðlun til félagsmanna á vegum félaga einstakra starfsstétta, stéttarfélaga og annarra samtaka falli almennt utan hugtakanna fjölmiðill og fjölmiðlastarfsemi Slík upplýsingamiðlun fellur að mati Fjölmiðlanefndar ekki undir miðlun fjölmiðlaefnis í hefðbundnum skilningi. Það sama gildir t.d. um upplýsingamiðlun á vegum hins opinbera. Fjölmiðlanefnd metur þó ávallt hvert tilvik fyrir sig á grundvelli þess sem áður hefur komið fram og því er ekki loku fyrir það skotið að slík miðlun falli undir lög um fjölmiðla.
Á að skrá starfsemi hlaðvarpa hjá Fjölmiðlanefnd?
Ef hlaðvarpið þitt uppfyllir skilyrði laga um fjölmiðla og af því er fjárhagslegur ávinningur er það sterk vísbending um að skrá beri hlaðvarpið sem fjölmiðil hjá Fjölmiðlanefnd, eins og á við um aðra miðla. Fjölmiðlanefnd metur síðan hverja beiðni um skráningu fyrir sig, m.a. með tilliti til fyrrgreindra atriða.
Hægt er að skrá hlaðvarp með rafrænum hætti með því að smella HÉR. Einnig er hægt að fylla út eyðublað með því að smella HÉR og senda til Fjölmiðlanefndar.
Hvernig á að snúa sér ef óvissa er um hvort skrá eigi hlaðvarp hjá Fjölmiðlanefnd?
Best er að hafa samband við Fjölmiðlanefnd ef spurningar vakna með því að senda tölvupóst á postur@fjolmidlanefnd.is eða hringja í síma 415-0415.
Kostar að skrá hlaðvarp hjá Fjölmiðlanefnd?
Nei, skráning er gjaldfrjáls.
Aðrar algengar spurningar og svör
Hvort starfsemi falli undir lög um fjölmiðla eða ekki getur haft mikla þýðingu þar sem ýmsar skyldur hvíla á þeim sem halda úti fjölmiðli samkvæmt ákvæðum laga um fjölmiðla ásamt ábyrgðarreglum í 50. og 51. gr. laganna. Einnig fylgja því ýmis réttindi, s.s. vernd heimildarmanna. Hafa ber í huga að þó að hlaðvarp eða aðrir miðlar séu ekki skráðir hjá Fjölmiðlanefnd gilda lög um fjölmiðla samt sem áður um starfsemina uppfylli hún þau skilyrði sem áður hefur verið fjallað um. Það er á forræði fjölmiðlaveitna, sem falla undir gildissvið laganna, að tilkynna nefndinni um starfsemi fjölmiðla, sbr. ákvæði 14. gr. laga um fjölmiðla.
Hér á eftir verður leitast við að svara helstu spurningum sem gætu vaknað hjá hlaðvarpsstjórnendum um hvaða reglur gilda um hlaðvörp og hvaða skyldur hvíla á þeim sem halda úti hlaðvarpi:
Öll starfsemi sem fellur undir gildissvið laga um fjölmiðla og er ekki leyfisskyld er skráningarskyld, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga um fjölmiðla. Þau hlaðvörp sem teljast fjölmiðlar í skilningi laga um fjölmiðla eiga því að skrá sig hjá Fjölmiðlanefnd.
Með skráningu skulu fylgja upplýsingar um fjölmiðlaveitu, þ.e. hver starfrækir hlaðvarpið, þ.m.t. heiti, kennitölu, lögheimili, netfang og vefsetur, heiti fjölmiðils eða fjölmiðla, ábyrgðarmann, fyrirsvarsmann, ritstjórnar- eða dagskrárstefnu, kallmerki ef við á og eignarhald, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Allar breytingar sem kunna að verða á högum fjölmiðlaveitu og liggja til grundvallar skráningu ber að tilkynna til Fjölmiðlanefndar, sbr. 4. mgr. 14. gr. laga um fjölmiðla.
Framangreindar upplýsingar eru birtar á vefsíðu Fjölmiðlanefndar þar sem finna má lista yfir alla skráða fjölmiðla og fjölmiðlaveitur hjá nefndinni. Þessar upplýsingar eru gerðar aðgengilegar á vefsíðu nefndarinnar til að tryggja gagnsæi í eignarhaldi fjölmiðla. Slíkt gagnsæi gerir almenningi kleift að taka upplýsta afstöðu til þeirra upplýsinga, hugmynda og skoðana sem birtast í fjölmiðlum og er jafnframt mikilvægur þáttur í að efla lýðræðislega þátttöku og miðlalæsi almennings. Einnig er nauðsynlegt að almenningur hafi aðgang að upplýsingum um hver starfrækir skráða fjölmiðla og við hvern er hægt að hafa samband ef t.d. einhver telur að lögmætir hagsmunir sínir, einkum æra eða orðspor, hafi beðið tjón af því að rangt hafi verið farið með staðreyndir í fjölmiðli, sbr. 36. gr. laga um fjölmiðla.
Fjölmiðlaveita er einstaklingur eða lögaðili sem starfrækir fjölmiðil, sbr. 14. tölul. 2. gr. laga um fjölmiðla. Lögin gera því ráð fyrir því að einstaklingar geti talist vera fjölmiðlaveitur og eru þó nokkrir skráðir hjá Fjölmiðlanefnd.
Já. Sömu lagaákvæði gilda um tjáningu í hlaðvörpum og alla aðra tjáningu, t.d. á netinu, í prentmiðlum eða annars staðar. Það er því ekki þannig að engar hömlur séu á því hvað megi segja í hlaðvörpum og hversu nærri einstaklingum megi ganga. Í lögum eru settar skorður við t.d. ærumeiðingum og brotum gegn friðhelgi einkalífs, hatursáróðri, hvatningu til refsiverðrar háttsemi og fleiru. Þessar reglur gilda óháð því hvort hlaðvörp teljast fjölmiðlar í skilningi laga eða ekki. Lög um fjölmiðla gilda hins vegar eingöngu um hlaðvörp sem teljast fjölmiðlar í skilningi laganna.
Nei. Bannað er að auglýsa áfenga drykki með yfir 2,25% áfengisinnihaldi, tóbaksvörur, nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir þær, happdrættis- og veðmálastarfsemi, sem ekki hefur leyfi samkvæmt lögum hér á landi, og lyfseðilsskyld lyf, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla. Sama gildir um önnur viðskiptaboð en með viðskiptaboðum er m.a. átt við auglýsingar, kostun og vöruinnsetningu. Sjá má nánar um þetta í leiðbeiningum fyrir fjölmiðla um bann við duldum viðskiptaboðum & kostun og vöruinnsetning í hljóð- og myndefni.
Já. Gæta þarf að því auglýsingar séu auðþekkjanlegar og skýrt afmarkaðar frá öðru efni hlaðvarpsins, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla. Auglýsingar sem ekki eru auðkenndar sem slíkar, t.d. þar sem hlustendur eru ekki upplýstir um að um auglýsingu sé að ræða, teljast duldar auglýsingar. Duldar auglýsingar eru óheimilar, sbr. 2. mgr. 37. gr. laganna. Sama gildir um önnur viðskiptaboð en með viðskiptaboðum er m.a. átt við auglýsingar, kostun og vöruinnsetningu. Þetta má t.d. gera með auglýsingahléi eða einhvers konar tilkynningu þar sem heiti viðkomandi fyrirtækis eða vöru kemur fram. Ef efni hlaðvarps er kostað, þ.e. fyrirtæki eða einstaklingar fjármagna einstaka dagskrárliði, án þess að hafa áhrif á innihald þeirra, efnistök eða tímasetningu, verður að gæta þess að upplýsa hlustendur um að aðrir en fjölmiðillinn sjálfur hafi tekið þátt í fjármögnun á dagskrárefninu, sbr. 4. mgr. 42. gr. laga um fjölmiðla. Slíkt er hægt að gera t.d. í upphafi þáttar, á meðan honum stendur og/eða í lok hans. Sjá má nánar um þetta í leiðbeiningum fyrir fjölmiðla um bann við duldum viðskiptaboðum & kostun og vöruinnsetning í hljóð- og myndefni.
Sá sem heldur úti hlaðvarpi ber ritstjórnarlega ábyrgð á efni og efnisvali þess sé brotið gegn lögum um fjölmiðla. Ef efni hlaðvarps brýtur gegn ákvæðum almennra hegningarlaga nr. 19/1940 gilda ábyrgðarreglur 50. gr. laga um fjölmiðla rati slík mál fyrir dómstóla. Samkvæmt 1. mgr. þeirrar greinar er það meginreglan að einstaklingur sem tjáir sig í eigin nafni, flytur eða miðlar efni sem hann hefur sjálfur samið eða flytur efni samið af öðrum, samkvæmt eigin ákvörðun, ber á því ábyrgð.
Brot gegn ákvæðum laga um fjölmiðla geta bæði varðað stjórnvaldssektum skv. 54. gr. laganna og refsingu skv. 56. gr. Heimildir Fjölmiðlanefndar til að beita stjórnvaldssektum eiga aðeins við um brot gegn nánar tilgreindum ákvæðum sem rakin eru í 54. gr. Við ákvörðun sektar er m.a. tekið tillit til alvarleika brots og tekna af broti þegar það á við. Ef fallið er frá sektarákvörðun er Fjölmiðlanefnd heimilt að ljúka málsmeðferð með útgáfu álits sem birt er á vefsíðu nefndarinnar.
Já. Þeim sem starfrækir hlaðvarp sem telst fjölmiðill í skilningi laga um fjölmiðla ber að varðveita efni sem miðlað hefur verið í a.m.k. 18 mánuði frá því efninu var fyrst miðlað svo lengi sem það fari ekki í bága við réttindi rétthafa, sbr. 35. gr. laga um fjölmiðla. Varðveisluskyldan er mikilvæg, m.a. til þess að unnt sé að virða rétt aðila til andsvara, sbr. 36. gr. laganna. Einnig þarf Fjölmiðlanefnd að hafa aðgang að efni komi fram ábendingar eða kvartanir um ætluð brot gegn lögum um fjölmiðla.
Já. Óheimilt er að miðla efni sem getur haft skaðvænleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðilegan þroska barna, einkum og sér í lagi efni sem felur í sér klám eða tilefnislaust ofbeldi, sbr. 1. mgr. 28. gr. laga um fjölmiðla. Þetta gildir einnig um auglýsingar og önnur viðskiptaboð og fjarkaup. Í 1. mgr. 38. gr. laganna er að finna sérreglu um vernd barna gegn ótilhlýðilegum viðskiptaorðsendingum og fjarkaupum. Þar segir að viðskiptaboð og fjarkaup megi ekki vera þannig að þau geti valdið börnum siðferðilegum eða líkamlegum skaða. Óleyfilegt er t.d. að hvetja börn til þess að kaupa vörur eða þjónustu með því að notfæra sér reynsluleysi þeirra eða trúgirni. Sjá má nánar um þetta í leiðbeiningum fyrir fjölmiðla um vernd barna gegn skaðlegu efni og almenn viðmið um opinbera umfjöllun um börn.
Já. Samkvæmt 23. gr. laga um fjölmiðla er fjölmiðlaveitu skylt að senda Fjölmiðlanefnd árlega skýrslu sem hefur að geyma upplýsingar um m.a. rekstur, tíðni útgáfu, uppfærðar upplýsingar um eignarhald ef við á og fleira. Fjölmiðlanefnd sendir árlega erindi á alla skráða fjölmiðla og óskar eftir skýrslunum og leiðbeinir um útfyllingu þeirra.
Sjá nánar:
- Lög um fjölmiðla nr. 38/2011
- Frumvarp til laga um fjölmiðla nr. 38/2011
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 (lög nr. 27/2024)
- Leiðbeiningar fyrir fjölmiðla um bann við duldum viðskiptaboðum & kostun og vöruinnsetning í hljóð- og myndefni
- Leiðbeiningar fyrir fjölmiðla um vernd barna gegn skaðlegu efni
- Almenn viðmið um opinbera umfjöllun um börn