Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sýn hf. hafi brotið gegn 3. mgr. 42. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um kostun hljóð- og myndefnis með miðlun kostaðs efnis þar sem vörur kostenda voru auglýstar sérstaklega, þ.e. Tuborg Classic og LOOP Zero, í tengslum við þættina FM95BLÖ á FM957. Með því að auglýsa Tuborg Classic hafi Sýn jafnframt gerst brotlegt við 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla um bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi. Það er einnig niðurstaða Fjölmiðlanefndar að Sýn hafi brotið gegn 6. mgr. 42. gr. laga um fjölmiðla með því að afla kostunar frá Duflandi ehf. vegna þáttanna FM95BLÖ en fyrirtækið hefur að mati Fjölmiðlanefndar að aðalstarfsemi sölu eða framleiðslu á tóbaksvörum, nikótínvörum, rafrettum eða áfyllingum.
Málið var tekið til efnislegrar meðferðar eftir skoðun Fjölmiðlanefndar á þáttum FM95BLÖ á FM957 sem miðlað var frá ágúst til október 2025.
Fjölmiðlanefnd ákvað að leggja stjórnvaldssekt á Sýn hf. vegna málsins. Við þá ákvörðun var tekið mið af því að Sýn hf. hafi margítrekað brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla um bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi og 3. mgr. 42. gr. sömu laga. Jafnframt var litið til þess Sýn hefur ekki áður brotið gegn 6. mgr. 42. gr. laga um fjölmiðla, eðlis brotanna og atvika máls að öðru leyti. Taldi Fjölmiðlanefnd hæfilegt að sektin næmi 2.000.000 kr.