Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Fjölmiðlatorginu ehf. hafi verið heimilt að synja beiðni Elds Smára Kristinssonar um andsvör vegna umfjöllunar á DV.is þann 24. september 2026 á grundvelli b-liðar 2. mgr. 36. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011.
Fjölmiðlanefnd barst kvörtun þann 28. september 2026 frá Eldi Smára Kristinssyni vegna umfjöllunar á netmiðlinum DV.is. Í kvörtuninni var vísað til 36. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um rétt til andsvara og var krafist íhlutunar Fjölmiðlanefndar. Fram kom að DV.is hefði ekki orðið við beiðni kvartanda um leiðréttingu eða beiðni hans um að koma á framfæri andsvörum vegna umfjöllunar DV.is.
Í kvörtuninni kom fram að á DV.is hefði birst frétt þann 24. september 2026 undir fyrirsögninni „Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu““. Í fréttinni væri fjallað um viðtal Ríkisútvarpsins ohf. við lækna í transteymi barna og unglinga á Landspítalanum. Væri kvartandi sérstaklega nafngreindur sem einn þeirra sem hefði „vakið máls á þessu“ og hlekkjað á skrif hans um málefnið. Að mati kvartanda væri hann þar með ekki aðeins nefndur í almennri umfjöllun um málefnið heldur væri nafn hans einnig tengt tilteknum skrifum og afstöðu. Í fréttinni væri því næst fjallað um gagnrýnendur á störf transteymisins og haft eftir lækni að málefnið tengdist m.a. fordómum sem „stafi af fákunnáttu og þekkingarleysi á líffræði mannsins“. Síðar í sömu umfjöllun væri gagnrýninni umræðu lýst sem „moldviðri“ sem væri þyrlað upp með „rangfærslum og vitleysu“. Kvartandi hefði gert DV.is grein fyrir því að hann teldi samspil nafnbirtingarinnar, hlekkjanna á skrif hans og þessara ummæla skapa villandi mynd af afstöðu hans og skrifum.
Í ákvörðun Fjölmiðlanefndar kemur fram að með vísan til þeirra greina sem kvartandi hefði birt á Fréttin.is, sem hlekkjað var á í umfjöllun DV.is, væri það mat Fjölmiðlanefndar að ekki væri um staðreyndavillu að ræða sem þarfnist leiðréttingar. Ljóst væri að kvartandi hefði fjallað um málefni trans barna með svipuðum hætti og þeir einstaklingar sem fjallað væri um í frétt DV.is. Að mati nefndarinnar fór DV.is því ekki rangt með staðreyndir með því að taka fram að kvartandi hefði „vakið máls á“ sama efni og hlekkja á skrif hans. Var það niðurstaða nefndarinnar að skilyrði 1. mgr. 36. gr. laga um um fjölmiðla um rétt til andsvara um að rangt hafi verið farið með staðreyndir í fjölmiðli teldust ekki uppfyllt. Í andsvörum kvartanda vegna umfjöllunar DV.is þann 24. september 2026 fælist annað og meira en að leiðrétta staðreyndir, sbr. b-lið 2. mgr. 36. gr. laga um fjölmiðla. Hefði Fjölmiðlatorginu ehf., fjölmiðlaveitu DV.is, því verið heimilt að synja kvartanda um birtingu andsvara og yrði fjölmiðlaveitunni ekki gert að birta þau.