Vera Sveinbjörnsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar 

Stjórn Fjölmiðlanefndar hefur ráðið Veru Sveinbjörnsdóttur í starf framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Vera hefur víðtæka reynslu af stjórnun, rekstri og opinberri stjórnsýslu, auk mikilvægrar sérþekkingar á ört þróandi áhrifum tækni á fjölmiðla og umhverfi þeirra.

Mynd: Vera Sveinbjörnsdóttir

Um árabil hefur Vera fengist við lagaleg álitaefni á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og netöryggis sem móta umgjörð fjölmiðlunar í nútímasamfélagi, auk þess sem hún hefur haft ríka aðkomu að stefnumótun og framkvæmd miðla- og upplýsingalæsis. Þá hefur hún víðtæka reynslu af málefnum rétthafa höfundarréttar, þar á meðal á sviði útgáfu, kvikmynda og fjölmiðlunar. Hún býr yfir mikilli þekkingu á netöryggismálum og kom meðal annars að stofnun Cert-Ís netöryggissveitarinnar, sem og verkefnum á sviði netöryggisfræðslu og öruggrar netnotkunar og hefur jafnframt setið í stýrihópi SAFT, en það starf hefur nú þróast áfram á vettvangi Netvís hjá Fjölmiðlanefnd.

Vera hefur frá árinu 2022 gegnt starfi framkvæmdastjóra Myndstefs – Myndhöfundasamtaka Íslands, þar sem hún hefur borið ábyrgð á rekstri, fjármálum, lögfræðilegum verkefnum, samningagerð, sem og stefnumótun og starfsmannamálum. Hún hefur einnig haldið utan um úthlutanir og styrkveitingar samtakanna. Þá hefur hún jafnframt borið ábyrgð á upplýsingamiðlun, vefmálum og samfélagsmiðlum samtakanna.

Áður starfaði Vera um 14 ára skeið sem lögfræðingur og teymisstjóri í Stjórnarráði Íslands, m.a. hjá Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, einkum á sviði fjarskipta-, upplýsingatækni- og netöryggismála. Þar öðlaðist hún víðtæka reynslu af lagasetningu, stefnumótun, opinberri stjórnsýslu, verkefnastjórnun og alþjóðlegu samstarfi. Hún starfaði einnig áður sem lögfræðingur hjá Póst- og fjarskiptastofnun, þar sem hún sinnti meðal annars eftirlits- og stjórnsýsluverkefnum. Vera hefur setið í ýmsum nefndum, ráðum og stjórnum í tengslum við störf sín og situr m.a. í stjórn IHM – Innheimtumiðstöð rétthafa og höfundaréttarráði, en hefur einnig setið í stjórnum og ráðum á öðrum vettvangi svo sem í íbúaráði Árbæjar og Norðlingaholts og stjórn Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands.

Vera lauk meistaraprófi og fullnaðarprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008. Hún hefur jafnframt aflað sér viðbótarmenntunar á sviði stefnumótunar og alþjóðlegrar fjarskiptareglusetningar.

Hún var valin úr öflugum hópi umsækjanda. „Vera býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu sem mun nýtast Fjölmiðlanefnd vel á tímum örra breytinga í fjölmiðla- og upplýsingaumhverfinu. Stjórnin ber fullt traust til hennar og hlakkar til samstarfsins,“ Jafnframt vill stjórnin færa Elfu Ýr Gylfadóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra, innilegar þakkir fyrir afar farsæl og óeigingjörn störf í þágu nefndarinnar á undanförnum árum. Framlag hennar, fagmennska og þekking hafa verið nefndinni afar dýrmæt og lagt mikilvægan grunn að því öfluga starfi sem þar hefur verið unnið

segir Einar Hugi Bjarnason, formaður stjórnar Fjölmiðlanefndar.

Vera tekur við starfinu á næstu vikum.