Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Úthlutunarnefnd skipa Anna Mjöll Karlsdóttir, lögfræðingur (formaður), samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, Gunnar Þór Tómasson, löggiltur endurskoðandi, samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.
Alls bárust 27 umsóknir um almennan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla innan umsóknarfrests og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 1.036.401.288 kr. Einni umsókn var vísað frá á grundvelli 6. mgr. 62. gr. j laga um fjölmiðla nr. 38/2011, eins og þeim var breytt með lögum nr. 83/2026, þar sem umsóknin barst að umsóknarfresti liðnum. Þá var tveimur umsóknum synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi samkvæmt 62. gr. g laga um fjölmiðla nr. 38/2011.
Í 62. gr. j laga um fjölmiðla nr. 38/2011 kemur fram að rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjanda. Stuðningur til hvers umsækjanda geti þó ekki orðið hærri en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. Auk þess fá staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins 20% álag á fjárhæð styrks.
Til úthlutunar voru 554 milljónir kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu umsókna, sérfræðiaðstoðar, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 1,5% af heildarfjárhæð eða 8.446.951 kr. Til úthlutunar voru því 545.553.049 kr. og skiptast þær á milli 25 fjölmiðlaveitna.
Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 25 fjölmiðlaveitur almennan rekstrarstuðning árið 2026:
| Árvakur hf. | 109.808.750 kr. |
| Birtíngur útgáfufélag ehf. | 3.713.828 kr. |
| Brotkast ehf. | 7.841.679 kr. |
| Bændasamtök Íslands | 23.278.247 kr. |
| Eiðfaxi TV ehf. | 6.320.543 kr. |
| Eigin herra ehf. | 9.488.726 kr. |
| Elísa Guðrún ehf. | 3.351.682 kr. |
| Eyjasýn ehf. | 5.405.205 kr. |
| Fjölmiðlatorgið ehf. | 43.459.582 kr. |
| Fótbolti ehf. | 13.674.189 kr. |
| Hönnunarhúsið ehf. | 1.693.482 kr. |
| Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. | 8.376.842 kr. |
| Myllusetur ehf. | 42.609.690 kr. |
| Nýprent ehf. | 5.371.267 kr. |
| Prentmet Oddi ehf. | 6.661.790 kr. |
| Sameinaða útgáfufélagið ehf. | 63.729.714 kr. |
| Samstöðin ehf. | 13.718.581 kr. |
| Skessuhorn ehf. | 15.776.176 kr. |
| Skrautás ehf. | 2.171.970 kr. |
| Steinprent ehf. | 4.658.875 kr. |
| Sýn hf. | 109.808.750 kr. |
| The Reykjavík Grapevine ehf. | 15.326.279 kr. |
| Útgáfufélag Austurlands ehf. | 8.238.488 kr. |
| Útgáfufélagið ehf. | 8.759.351 kr. |
| Víkurfréttir ehf. | 12.309.363 kr. |