Fjölmiðlanefnd skal skv. 15. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu nr. 23/2013 árlega leggja sjálfstætt mat á það hvort Ríkisútvarpið hafi uppfyllt almannaþjónustuhlutverk sitt skv. 3. gr. laganna.
Matið skal afhent stjórn Ríkisútvarpsins og ráðherra eigi síðar en fjórum mánuðum eftir að ársskýrsla Ríkisútvarpsins hefur verið birt. Nefndin hefur nú lagt mat á almannaþjónustuhlutverk Ríkisútvarpsins vegna ársins 2024.
Matið fór fram á grundvelli greinargerðar sem RÚV sendi Fjölmiðlanefnd 27. maí 2025, með skoðun og yfirferð staðreynda sem fram komu í greinargerðinni og staðfestingu á réttmæti þeirra, með athugun ársskýrslu og ársreiknings RÚV, sem og annarra gagna. Verklag Fjölmiðlanefndar við mat á almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins var einfaldað á árinu 2024 þegar horfið var frá því að gefa út skýrslu, eins og gert hafði verið áður. Þess í stað er birt tafla sem sýnir yfirlit yfir skyldur Ríkisútvarpsins skv. 3. gr. laga nr. 23/2013, og mat Fjölmiðlanefndar á því hvort þær teljist hafa verið uppfylltar, ekki að öllu leyti uppfylltar eða að framkvæmd á þeim sé óviðunandi. Greinargerð Ríkisútvarpsins fylgir þessari yfirlýsingu um niðurstöðu Fjölmiðlanefndar um mat á almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins sem viðauki.
Það er mat Fjölmiðlanefndar að Ríkisútvarpið hafi uppfyllt skyldur sínar á árinu 2024, samkvæmt 3. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu og samkvæmt samningi menningar- og viðskiptaráðherra og Ríkisútvarpsins ohf. um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu 2024-2027. Enn fremur er það mat Fjölmiðlanefndar að Ríkisútvarpið ohf. hafi uppfyllt skyldu sína um aðgreiningu kostnaðar vegna almannaþjónustuhlutverks síns frá kostnaði vegna samkeppnisreksturs í bókhaldi félagsins og RÚV Sölu ehf., árið 2024.
Yfirlit yfir mat Fjölmiðlanefndar á skyldum Ríkisútvarpsins ohf. samkvæmt 3. gr. laga um Ríkisútvarpið nr. 23/2013: