Meira en helmingur þátttakenda segir upplifun sína af samfélagsmiðlum verri nú en þegar þeir byrjuðu að nota þá. 63,8% sögðust sjá færri færslur frá vinum á samfélagsmiðlum nú en fyrir ári síðan og 88,5% sögðu magn auglýsinga og efnis frá ókunnugum hafa aukist. Rúmur helmingur aðspurðra kvaðst hafa rekist vikulega á efni á netinu sem innihélt hatursfullar tilvísanir í garð ákveðinna hópa síðastliðna 12 mánuði fyrir könnun og 41,7% þátttakenda á aldrinum 18-29 ára sagðist hafa rekist daglega á slíkt efni. 56,6% þátttakenda sögðust oft vera í símanum á salerninu og 36,3% eiga erfitt með að horfa á heila mynd, þátt eða íþróttaviðburð án þess að fara í símann. 29,3% þátttakenda á aldrinum 18-39 ára sögðust þurfa að hlusta eða horfa á eitthvað í símanum til að geta sofnað og nærri helmingur þátttakenda á aldrinum 18-29 ára sögðust eiga erfitt með að borða án þess að horfa á myndbönd, þætti, myndir eða skrolla í símanum á meðan. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar um viðhorf til samfélagsmiðla og skjánotkunar. Skýrslan byggir á niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd sem lögð var fyrir í nóvember 2025.
Meirihluti telur sig eyða of miklum tíma fyrir framan skjá
Þegar þátttakendur voru spurðir hversu sammála eða ósammála þeir væru fullyrðingunni „mér finnst ég eyða of miklum tíma fyrir framan skjá (síma, tölvu, sjónvarpi, o.s.frv.)“ sögðust 61,4% vera sammála henni. Þar af sögðust 25,3% vera mjög sammála. Alls kváðust 24,8% vera í meðallagi sammála fullyrðingunni og 13,8% ósammála. Yngri þátttakendur voru í ríkari mæli sammála fullyrðingunni en þeir eldri. Að sama skapi voru konur (66,8%) líklegri til að vera sammála henni heldur en karlar (56,4%).
Flestir segja upplifun sína af samfélagsmiðlum hafa versnað
Mikill meirihluti þátttakenda, eða 60,4%, sögðu upplifun sína af samfélagsmiðlum verri nú en hún var þegar þeir byrjuðu að nota þá. Þar af sagði fjórðungur upplifunina miklu verri. Þátttakendur á aldrinum 30–49 ára voru líklegri en aðrir aldurshópar til að segja upplifun sína á samfélagsmiðlum hafa versnað. Tæplega þrír af hverjum fjórum þátttakendum sögðust birta færri færslur á samfélagsmiðlum nú en þegar þeir byrjuðu að nota þá og rúmlega helmingur sögðust birta miklu færri færslur. Að sama skapi sögðust um 64% aðspurðra sjá færri færslur frá vinum á samfélagsmiðlum nú en fyrir ári síðan. Á móti sögðu langflestir (88,5%) magn auglýsinga og efnis frá ókunnugum hafa aukist á samfélagsmiðlum sínum síðastliðið ár.
Helmingur rakst vikulega á hatursfullt efni á netinu
Rúmlega helmingur þátttakenda (51,7%) sagðist hafa rekist á efni á netinu sem innihélt hatursfullar tilvísanir í garð einhverra hópa a.m.k. vikulega síðastliðna 12 mánuði. Séu niðurstöðurnar skoðaðar með tilliti til kyns má sjá að karlar (35%) rekast oftar á slíkt efni á netinu heldur en konur (21,4%). Yngsti aldurshópurinn sagðist oftast hafa rekist á hatursfullt efni á netinu á tímabilinu en þrír af hverjum fjórum þátttakendum á aldrinum 18-29 ára sögðust hafa rekist á slíkt efni a.m.k. vikulega. Þar af sögðust 41,7% hafa rekist á slíkt efni daglega. Af þeim sem höfðu rekist á hatursfullt efni á netinu síðastliðna 12 mánuði sögðust 44% ekki hafa gert neitt þegar þeir rákust á efnið. Karlar brugðust síður við þegar þeir rákust á slíkt efni heldur en konur en rúmur helmingur karla gerði ekkert í þeim aðstæðum samanborið við rúman þriðjung kvenna. Þá var hlutfall hægrisinnaðra (58,2%) sem gerðu ekkert til að bregðast við slíku efni töluvert hærra en vinstrisinnaðra (29,6%). Þriðjungur þátttakenda kvaðst hafa fengið sent efni sem innihélt hatursfullar tilvísanir í garð einhverra hópa samfélagsins í einkaskilaboðum eða hópspjalli síðastliðna 12 mánuði.
Oft í símanum á salerninu og eiga erfitt með að borða án þess að horfa á skjá
Þrír af hverjum fjórum aðspurðra sögðust fara í símann þegar þeim leiðist og rúmur helmingur sagðist oft vera í símanum á salerninu. Þá sagði um helmingur þátttakenda að það síðasta sem þeir geri fyrir svefn og það fyrsta sem þeir geri eftir að þeir vakna sé að kíkja í símann. Tæplega 47% sögðust oft fylgjast með tveimur eða fleiri skjám á sama tíma heima hjá sér og rúmur þriðjungur kvaðst eiga erfitt með að horfa á heila mynd, þátt eða íþróttaviðburð án þess að fara í símann. Þá voru um 28% þátttakenda sem sögðu það koma fyrir að þeir noti símann undir stýri, nærri 23% sögðust þurfa að hlusta eða horfa á eitthvað í símanum til að sofna og 19% sögðust eiga erfitt með að borða án þess að horfa á myndbönd, þætti, myndir eða skrolla í símanum á meðan.
Þriðjungur ungs fólks þarf að hlusta eða horfa á eitthvað til að geta sofnað
Athygli vekur að yfir 80% þátttakenda í aldurshópnum 18-29 ára sögðust oft vera í símanum á salerninu, nærri helmingur sagðist eiga erfitt með að borða án þess að horfa á eitthvað í símanum og 29,3% sagðist þurfa að hlusta eða horfa á eitthvað í símanum til þess að geta sofnað. Sé litið til næsta aldurshóps fyrir ofan (30-39 ára) má sjá að rúmur helmingur kvaðst eiga erfitt með að horfa á heila mynd, þátt eða íþróttaviðburð án þess að fara í símann. Greinilegt kynslóðabil má sjá í niðurstöðunum og fara hlutföllin almennt lækkandi með hækkandi aldri. Vert er að nefna að enginn þátttakandi á aldrinum 18-29 ára taldi ekkert af ofangreindu eiga við um sig. Hlutfall þátttakenda á aldrinum 60 ára og eldri sem tók sömu afstöðu var hins vegar 32%.
Flestir vilja hærra aldurstakmark á samfélagsmiðlum
Rúmur þriðjungur aðspurðra var á þeirri skoðun að aldurstakmark á samfélagsmiðlum ætti að vera 16 ára. 17% þátttakenda sögðu það eiga að vera annað hvort 15 ára eða 18 ára. Athygli vekur að einungis 10,1% þátttakenda sögðu að aldurstakmarkið ætti að vera 13 ára, sem er núverandi aldurstakmark helstu samfélagsmiðla. Þá voru einungis 4,2% þeirrar skoðunar að aldurstakmarkið ætti að vera lægra en 13 ára og 3,9% að ekkert aldurstakmark ætti að vera á samfélagsmiðlum.