Úthlutunarnefnd auglýsir eftir umsóknum einkarekinna fjölmiðla um almennan rekstrarstuðning sem veittur verður á árinu 2026. Umsóknum skal skilað í gegnum vefgátt á vef Fjölmiðlanefndar, sem má finna hér að neðan, og er umsóknarfrestur til og með 1. september 2026.
Með lögum nr. 83/2026 um breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, sem samþykkt voru á Alþingi 19. júní 2026, var úthlutunarnefnd veitt heimild til að veita rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla, sbr. X. kafla B laga um fjölmiðla nr. 38/2011
Í X. kafla B laga um fjölmiðla nr. 38/2011, sbr. breytingalög nr. 83/2026, og reglugerð um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla nr. 788/2026, eru tilgreind skilyrði fyrir almennum rekstrarstuðningi og einnig getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Er umsækjendum bent á að kynna sér þau og einnig hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn. Samkvæmt lögunum sér Fjölmiðlanefnd um umsýslu umsókna og veitir úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð eftir nánara samkomulagi.
Til úthlutunar árið 2026 verða 554 millj. kr. að frádreginni þóknun fyrir störf úthlutunarnefndar og öðrum kostnaði við umsýslu. Í 62. gr. j laga um fjölmiðla nr. 38/2011, sbr. fyrrgreind breytingalög, kemur fram að almennur rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjanda. Stuðningur til hvers umsækjanda geti þó ekki orðið hærri en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. Staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem efnisskírskotun er staðbundin og efni höfðar aðallega til notenda sem tengsl hafa við útbreiðslusvæði miðils, hljóta 20% álag á fjárhæð styrks.
Stuðningskerfi til einkarekinna fjölmiðla felur í sér ríkisaðstoð í skilningi 61. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, og er stuðningurinn tilkynningarskyldur til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) áður en hann kemur til framkvæmda. Styrkjakerfið hefur áður verið samþykkt af ESA með ákvörðun nr. 206/21/COL, sbr. einnig ákvörðun ESA nr. 125/23/COL, nr. 193/25/COL, og nú síðast ákvörðun nr. 112/26/COL. Athygli er vakin á því að upplýsingar um styrkveitingar verða birtar opinberlega í samræmi við reglur ESA þar að lútandi.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í gegnum vefgátt á vef Fjölmiðlanefndar fyrir miðnætti 1. september nk.
Ef spurningar vakna varðandi útfyllingu umsóknar má senda fyrirspurn á postur@fjolmidlanefnd.is.