Ákvörðun 4/2026: Skráningarskylda hlaðvarpsins Einnar Pælingar – 26. ágúst 2026

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að stjórnandi hlaðvarpsins Einnar Pælingar hafi brotið gegn 1. mgr. 14. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um skráningu fjölmiðla með því að sinna ekki skráningarskyldu sinni.

Með erindi þann 5. nóvember 2025 óskaði Fjölmiðlanefnd eftir skráningu hlaðvarpsins Einnar Pælingar hjá nefndinni á grundvelli 14. gr. laga um fjölmiðla. Að mati nefndarinnar uppfyllir hlaðvarpið skilyrði laganna og telst fjölmiðill í skilningi þeirra, sbr. 13. og 15. tölul. 2. gr. laganna um skilgreiningu á hugtakinu fjölmiðill og fjölmiðlaþjónusta. Í ákvörðun Fjölmiðlanefndar er ítarlega farið yfir mat nefndarinnar.

Fjölmiðlanefnd ákvað að leggja stjórnvaldssekt á stjórnanda hlaðvarpsins vegna málsins. Við þá ákvörðun var litið til eðlis brotsins og atvika máls. Taldi Fjölmiðlanefnd hæfilegt að sektin næmi 500.000 kr.

Ákvörðun 4/2026: Skráningarskylda hlaðvarpsins Einnar Pælingar – 26. ágúst 2026