Opið fyrir umsóknir um styrki úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna

Menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur birt auglýsingu þess efnis að opnað hafi verið fyrir umsóknir um styrki úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna. 

Vakin er athygli á að umsóknum skal beina til ráðuneytisins og er skilafrestur fyrir umsóknir fyrir miðnætti sunnudaginn 1. nóvember nk. Umsóknum skal skilað á netfangið mnh@mnh.is.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Stjórnarráðs Íslands.