Styrkir úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla

Á næstu dögum mun Rannís auglýsa eftir umsóknum um styrki úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla. Sjóðurinn er hluti af aðgerðaráætlun fjölmiðla – nánar tiltekið aðgerð 8, sem kveður á um að stutt verði við þróun nýrra fréttamiðla og nýsköpunarverkefni innan eldri fréttamiðla, þar á meðal þróun tæknilegrar nýbreytni og nýrra miðlunarleiða. Undir tæknilega nýbreytni falla t.d. stafrænar lausnir sem byggjast á gervigreind og lausnir sem nýtast við sölu vefáskrifta.

Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér reglur nr. 986/2026 og hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn.

Í 7. gr. reglnanna eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til nýrra fjölmiðla og í 8. gr. eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til starfandi fjölmiðla. Í 4. gr. er getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Umsækjendum er heimilt að sækja um styrk til fleiri verkefna en eins en ber þá að skila sérstakri umsókn fyrir hvert verkefni fyrir sig.

Rannís annast umsjón með sjóðnum og auglýsir eftir umsóknum. Opnað verður fyrir umsóknir á vef Rannís í október og verður umsóknarfrestur til 16. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Stjórnarráðs Íslands.