Úthlutunarnefnd auglýsir eftir umsóknum einkarekinna fjölmiðla, sem sinna fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu, um viðbótarstuðning sem veittur verður á árinu 2026. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2026.
Með lögum nr. 83/2026, um breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, sem samþykkt voru á Alþingi 19. júní 2026, var úthlutunarnefnd veitt heimild til að veita viðbótarstuðning til einkarekinna fjölmiðla sem uppfylla sértæk skilyrði og sinna fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu, sbr. X. kafla B laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Athygli er vakin á því að um nýmæli er að ræða og er umsóknaraðilum bent á að kynna sér sérstaklega þau skilyrði sem sett eru fyrir veitingu viðbótarstuðnings og fram koma í X. kafla B laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og reglugerð um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla nr. 788/2026.
Skilyrðin eru eftirfarandi samkvæmt 62. gr. h laga um fjölmiðla nr. 38/2011:
- Rekstrarkostnaður er stuðningshæfur, sbr. 62. gr. i laga um fjölmiðla, og uppfyllt eru önnur skilyrði fyrir almennum rekstrarstuðningi, sbr. 62. gr. g sömu laga.
- Fjölmiðill sinnir daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu.
- Efnistök fjölmiðils eru fjölbreytt og með víðtæka og almenna skírskotun en ekki bundin við afmörkuð svið samfélagsins.
- Ritstjórnarefni prent- og vefmiðils skal vera að lágmarki 50% efnis á móti auglýsingum og a.m.k. 25% ritstjórnarefnis prent- og vefmiðils skal vera efni sem er frumunnið á ritstjórn.
- Á ritstjórn fjölmiðils starfa að lágmarki 20 blaðamenn, blaðaljósmyndarar og myndatökumenn í fullu starfi við að afla og miðla efni og ritstjórn hefur viðbragðsgetu allan sólarhringinn.
- Fjölmiðill sinnir kosningaumfjöllun á landsvísu.
Samkvæmt lögunum sér Fjölmiðlanefnd um umsýslu umsókna og veitir úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð eftir nánara samkomulagi.
Til úthlutunar árið 2026 verða 60 millj. kr. að frádreginni þóknun fyrir störf úthlutunarnefndar og öðrum kostnaði við umsýslu. Í 7. mgr. 62. gr. j laga um fjölmiðla nr. 38/2011 kemur fram að fjárveiting til viðbótarstuðnings við fjölmiðla sem sinna fréttaþjónustu á landsvísu í almannaþágu skiptist í jöfnum hlutföllum á milli umsækjenda sem uppfylla skilyrði 62. gr. h sömu laga.
Stuðningskerfi til einkarekinna fjölmiðla felur í sér ríkisaðstoð í skilningi 61. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, og er stuðningurinn tilkynningarskyldur til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) áður en hann kemur til framkvæmda. Styrkjakerfið hefur verið samþykkt með ákvörðun ESA nr. 112/26/COL. Athygli er vakin á því að upplýsingar um styrkveitingar verða birtar opinberlega í samræmi við reglur ESA þar að lútandi.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í gegnum netfang Fjölmiðlanefndar, postur@fjolmidlanefnd.is, fyrir miðnætti 1. nóvember 2026. Ekki þarf að fylla út sérstakt eyðublað en í erindi umsóknaraðila til Fjölmiðlanefndar skal koma fram heiti fjölmiðlaveitu og fjölmiðla sem sótt er um fyrir og hvernig umsóknaraðili uppfyllir skilyrði fyrir viðbótarstuðningi samkvæmt 62. gr. h laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og 6. gr. reglugerðar um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla nr. 788/2026, ásamt upplýsingum um bankareikning og tengilið vegna umsóknar. Þá skulu fylgja með umsókn þau gögn og upplýsingar sem fram koma í 5. gr. reglugerðar nr. 788/2026.
Ef spurningar vakna má senda fyrirspurn á postur@fjolmidlanefnd.