Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla. Sjóðurinn er hluti af aðgerðaráætlun fjölmiðla – nánar tiltekið aðgerð 8, sem kveður á um að stutt verði við þróun nýrra fréttamiðla og nýsköpunarverkefni innan eldri fréttamiðla, þar á meðal þróun tæknilegrar nýbreytni og nýrra miðlunarleiða. Undir tæknilega nýbreytni falla t.d. stafrænar lausnir sem byggjast á gervigreind og lausnir sem nýtast við sölu vefáskrifta.
Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér reglur nr. 986/2026 og hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn.
Í 7. gr. reglnanna eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til nýrra fjölmiðla og í 8. gr. eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til starfandi fjölmiðla. Í 4. gr. er getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn.
Sjá nánari upplýsingar á vef Rannís: https://island.is/s/rannis/frett/opid-fyrir-umsoknir-i-nyskoepunar-og-throunarsjodur-fjoelmidla.
Upplýsingar um úthlutunarnefnd sjóðsins er að finna hér: https://www.stjornarradid.is/raduneyti/nefndir/nanar-um-nefnd/uthlutunarnefnd-nyskopunar-og-throunarsjods-fjolmidla.
Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2026 kl. 15:00.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís), sjá hér: Nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla | Ísland.is.