Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Finn Beck héraðsdómslögmann í fjölmiðlanefnd, samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands.
Jafnframt hefur Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl. látið af störfum hjá nefndinni, þar sem hann hefur verið skipaður í embætti dómara við Landsrétt. Vilhjálmur hefur setið í fjölmiðlanefnd frá stofnun hennar 2011, auk þess sem hann átti áður sæti í útvarpsréttarnefnd, frá 2007-2011. Vilhjálmi eru þökkuð góð og farsæl störf í þágu fjölmiðlanefndar og óskað velfarnaðar í nýju starfi.
Skipan fjölmiðlanefndar:
– Hulda Árnadóttir, héraðsdómslögmaður, formaður
– Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómslögmaður og sérfræðingur við lagadeild HR, varaformaður
– Finnur Beck, héraðsdómslögmaður
– Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands
– Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki og sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands
Varamenn:
– Davíð Þorláksson, héraðsdómslögmaður og forstöðumaður samkeppnishæfnisviðis Samtaka atvinnulífsins
– Marteinn Másson, hæstaréttarlögmaður
– Kolbrún Sævarsdóttir, héraðsdómari
– Björn Vignir Sigurpálsson, formaður Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands
– Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri
Skipunartímabil fjölmiðlanefndar er til 31. ágúst 2019.