Fjölmiðlanefnd óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa. Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem annast eftirlit með lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, eftirlit með lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu nr. 23/2013, og eftirlit með lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum og annast daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til.
Starfssvið:
– Almenn lögfræðistörf
– Þátttaka í stefnumörkun
– Samskipti við stjórnsýslu
– Þátttaka í norrænu og evrópsku samstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Kandídats- eða meistaraprófi í lögfræði er skilyrði (hafa lokið 5 ára laganámi)
– Mjög gott vald á íslensku og færni til að rita vandaðan texta er skilyrði
– Þekking á sviði stjórnsýsluréttar og starfsreynsla innan stjórnsýslunnar er æskileg
– Þekking og reynsla á sviði fjölmiðlaréttar er æskileg
– Góð enskukunnátta er skilyrði og kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg
– Rík áhersla er lögð á styrkleika í samvinnu og samskiptum
– Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
– Sjálfstæði, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið:
Um starfskjör starfsmanna fjölmiðlanefndar fer eftir gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttafélag lögfræðinga hefur gert. Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á lögfræðilega getu og kunnáttu. Í boði er starf í síbreytilegu og spennandi umhverfi.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt prófskírteini og kynningarbréfi þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2018. Senda skal umsóknir til fjölmiðlanefndar, Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir:
Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri í síma 415 0415 og elfa@fjolmidlanefnd.is
