Fjölmiðlaveita

Fröken ehf.

  • Nafn miðla
    Reykjavík Grapevine og Grapevine.is
  • Fyrirsvarsmaður
    Jón Trausti Sigurðarson
  • Ábyrgðarmaður
    Jón Trausti Sigurðarson

Ritstjórnarstefna Reykjavík Grapevine

Reykjavík Grapevine er tímarit á ensku sem leitast við að blanda saman þjóðfélagsumræðu, afþreyingu og upplýsingum. Megin markmið Reykjavik Grapevine er að endurspegla það samfélag sem það sprettur úr og þær skoðanir sem þar finnast. Reykjavík Grapevine er ætlað erlendum ferðamönnum og nýjum Íslendingum og eru efnisþættir og framsetning sniðin að því að þjóna þeim hópum. Skýr skil eru milli efnis og auglýsinga – Reykjavík Grapevine er með sjálfstæða ritstjórn.

Reglur Reykjavík Grapevine um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Ritstjórnarstefna Grapevine.is

Grapevine.is er afþreyingar- og upplýsingavefur fyrir áhugafólk um Ísland, nýja Íslendinga og ferðamenn á leið til landsins. Grapevine.is er í grunninn vefútgáfa tímaritsins Reykjavik Grapevine, en býður einnig upp á úrval efnis sem er sérsniðið að þeim möguleikum sem netið býður uppá. Á síðunni má finna lærðar og léttar greinar um það helsta sem er í gangi á Íslandi hverju sinni, hvort heldur er í menningarlífinu, stjórnmálum eða almennum þjóðfélagsmálum. Skýr skil eru á milli efnis og auglýsinga. Grapevine.is er með sjálfstæða ritstjórn og þá sömu og tímaritið Reykjavík Grapevine.

Reglur Grapevine.is um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Eignarhald Fröken ehf.

  • 41,06%
    Marcus Parks
    kt. ekki birt
  • 25,79%
    Jón T. Sigurðarson
    kt. ekki birt
  • 18,15%
    Oddur Ó. Kjartansson
    kt. ekki birt
  • 15%
    Aðalsteinn Jörundsson
    kt. ekki birt

Upplýsingar um eignarhald uppfærðar 1. mars 2023