Fjölmiðlaveita
Rafíþróttasamband Íslands
-
HeimilisfangSmáratorgi 3, 201 Kópavogi
-
Kennitala531118-0140
-
Netfangrafithrottir [hjá] rafithrottir.is
Dagskrárstefna Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ)
1. Gildissvið og markmið
Dagskrárstefna þessi gildir um alla dagskrárgerð, útsendingar og miðlun efnis á vegum Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ). Þetta á einnig við sjónvarpsútsendingar, streymi, upptökur, fræðsluefni og aðra dagskrárliði sem ætlaðir eru almenningi.
Markmið dagskrár RÍSÍ er að þjóna almannahagsmunum með því að miðla hlutlausri, áreiðanlegri og faglegri dagskrá um rafíþróttir og tengd málefni á Íslandi. Dagskrárstefnan byggir á fagmennsku, gagnsæi og ábyrgð í allri framsetningu efnis og tekur til fræðslu, mótahalds, viðburða, samfélagslegrar umræðu og menningarlegs hlutverks rafíþrótta.
Dagskráin skal stuðla að upplýstri umræðu, jákvæðri þróun rafíþrótta og auknum skilningi almennings á félagslegu, menningarlegu og uppeldislegu gildi rafíþrótta.
2. Hlutverk dagskrár og sjálfstæði
Hlutverk dagskrár RÍSÍ er að veita almenningi aðgengilega, upplýsandi og uppbyggilega dagskrá þar sem sannleikur, réttmæti og jafnræði eru höfð að leiðarljósi.
Dagskrárgerð á vegum RÍSÍ skal vera sjálfstæð og óháð utanaðkomandi hagsmunum, þar á meðal fjárhagslegum, pólitískum eða viðskiptalegum áhrifum. Ákvarðanir um dagskrárefni, tímasetningar, framsetningu og áherslur eru teknar á faglegum forsendum og skulu ekki mótast af styrktaraðilum, auglýsendum eða öðrum hagsmunaaðilum.
Sjálfstæði dagskrár er grundvöllur trúverðugleika miðilsins og skal ávallt virt af stjórn, samstarfsaðilum og öðrum tengdum aðilum.
3. Dagskrárefni og áherslur
Dagskrá RÍSÍ skal endurspegla fjölbreytni rafíþrótta á Íslandi og tekur mið af mismunandi hópum samfélagsins. Áhersla er meðal annars lögð á:
Útsendingar frá rafíþróttamótum og keppnum
Fræðslu- og kynningarefni um rafíþróttir
Umfjöllun um félagslegt, menntunarlegt og heilsufarslegt gildi rafíþrótta
Efni fyrir börn og ungmenni
Viðtöl, umræðuþætti og greiningar
Dagskrá sem eflir jafnrétti, aðgengi og fjölbreytni
Dagskráefni skal vera byggt á staðreyndum, sett fram af sanngirni og unnið með virðingu fyrir þátttakendum, áhorfendum og samfélaginu í heild. Efni sem felur í sér mismunun, hatursorðræðu eða ósæmilegt orðalag á ekki heima í dagskrá RÍSÍ.
4. Börn, ungmenni og viðkvæmir hópar
Við dagskrárgerð sem snýr að börnum, ungmennum eða öðrum viðkvæmum hópum skal gæta sérstakrar varfærni. Dagskrá skal vera uppbyggileg og í samræmi við lög, siðareglur og fagleg viðmið.
Persónugreinanlegar upplýsingar um börn og ungmenni skulu ekki birtar nema með upplýstu samþykki forsjáraðila og viðkomandi, eftir því sem við á.
5. Framsetning, trúnaður og persónuvernd
Við framleiðslu og útsendingu dagskrár skal ávallt gæta trúnaðar og persónuverndar. Upplýsingar sem berast í tengslum við dagskrárgerð skulu meðhöndlaðar af ábyrgð og í samræmi við gildandi lög.
Trúnaður við heimildarmenn og viðmælendur skal virtur
Ef óskað er eftir nafnleynd skal hún tryggð
Persónugreinanleg gögn eru ekki birt nema með skýru samþykki eða samkvæmt lagaskyldu
6. Starfshættir og fagleg ábyrgð
Allir þeir sem koma að dagskrárgerð fyrir RÍSÍ eru fulltrúar sambandsins og skulu starfa í samræmi við siðareglur RÍSÍ. Virðing, kurteisi, fagmennska og ábyrgð skulu einkenna alla vinnu.
Viðtöl og þátttaka í dagskrá skulu byggja á upplýstu samþykki og skýrri kynningu á eðli dagskrárinnar og tilgangi hennar.
7. Ábyrgð og framkvæmd dagskrárstefnu
Ritstjóri eða dagskrárstjóri RÍSÍ ber faglega ábyrgð á dagskrá, efnisvali og framkvæmd þessarar dagskrárstefnu. Sá aðili hefur sjálfstæði í ákvörðunum um dagskrárefni, framsetningu og útsendingar.
Stjórn Rafíþróttasambands Íslands ræður ábyrgðaraðila dagskrár en hefur engin afskipti af daglegri dagskrárgerð eða efnisvali. Þetta fyrirkomulag tryggir sjálfstæði, fagmennsku og trúverðugleika dagskrár RÍSÍ.
Eignarhald
-
100%Rafíþróttasamband Íslands (félagasamtök, stjórnarformaður Kári Björnsson)kt. 531118 0140
Upplýsingar skráðar 5. mars 2026.