Skráður fjölmiðill

Rúv.is

  • Fyrirsvarsmaður
    Stefán Eiríksson
  • Ábyrgðarmaður
    Stefán Eiríksson
  • Heimilisfang
    Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
  • Sími
    515 3000
  • Kennitala
    600307 0450
  • Netfang
    ruv [hjá] ruv.is

Ritstjórnarstefna

Á vef Ríkisútvarpsins, www.ruv.is, eru fluttar fréttir og fræðsluefni. Vefurinn er vettvangur skoðanaskipta, eins og kveðið er á um í lögum um Ríkisútvarpið ohf. og í þjónustusamningi þess og menntamálaráðuneytisins um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Haldnar eru í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur um mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Þar er einnig veitt víðtæk, áreiðanleg, almenn og hlutlæg fréttaþjónusta um innlend og erlend málefni líðandi stundar. Vefurinn er ennfremur vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða. Jafnframt því að endurspegla það fjölbreytta efni sem framleitt er hjá RÚV hverju sinni er vefnum ætlað það hlutverk að vera sjálfstæður miðill sem kemur til móts við auknar kröfur samfélagsins um miðlun á forsendum almannaþjónustu með nútímasamskiptaleiðum, m.a. á internetinu, í samfélagsmiðlun og með nettengdum smátækjum sem nú eru orðin almenningseign. Jafnframt skal tekið fram að áður framleitt dagskrárefni í vörslu RÚV, menningararfurinn, mun smátt og smátt verða gerður aðgengilegur almenningi með þeim hætti að hver og einn geti fengið aðgang að efninu. Þetta gildir þó eingöngu um efni sem félagið hefur rétt til birtingar á.

Stefna ruv.is er að upplýsa, fræða og skemmta almenningi. Vefurinn nýtur sérstöðu fyrir vandaðar fréttir settar fram með skýrum og lifandi hætti. Vefurinn er starfræktur í samræmi við reglur sem Ríkisútvarpið hefur sett sér um meðhöndlun frétta og dagskrárefnis.

Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Eignarhald Ríkisútvarpsins ohf.

  • 100%
    Opinbert hlutafélag sem er 100% í eigu íslenska ríkisins
    kt. ekki birt

Upplýsingar um ábyrgðar- og fyrirsvarsmann uppfærðar 1. mars 2020.

Árlegt mat fjölmiðlanefndar á almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins ohf. skv. 15. gr. laga um Ríkisútvarpið nr. 23/2013

Ákvarðanir og álit í málum Ríkisútvarpsins ohf.

2019

Álit 7/2019 Kostun sjónvarpsþáttanna #12stig á RÚV og rofs sömu þátta með auglýsingum – 2. júlí 2019

Álit 4/2019 Hlutfall viðskiptaboða innan hverrar klukkustundar á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar 2019 á RÚV – 27. maí 2019

Álit 3/2019 Lottú-útdráttur Íslenskrar getspár á RÚV – 17. maí 2019

Álit 6 2019 Kostun sjónvarpsþáttanna Alla leið á RÚV – 2. júlí 2019

Álit 2/2019 Umfjöllun um Menn í vinnu ehf. á RÚV – 5. febrúar 2019

Ákvörðun 1/2019 Kostun Golfsambands Íslands á þáttaröðinni Golfið, sem var á dagskrá RÚV sumarið 2018 – 11. janúar 2019

2018

Ákvörðun 9/2018 Beiðni Menn í vinnu ehf. um andsvar á grundvelli 36. gr. laga um fjölmiðla, vegna umfjöllunar um félagið í Kveik 2. október, Kastljósi 4. október og vegna yfirlýsingar ritstjóra Kveiks á Vísi 3. október 2018 – 5. desember 2018

Ákvörðun 7/2018 Háttsemi Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði í tengslum við sýningar á HM karla í knatttspyrnu 2018 á RÚV – 21. nóvember 2018

Ákvörðun 1/2018 Beiðni Símasamstæðunnar um andsvar á grundvelli 36. gr. laga um fjölmiðla – 5. apríl 2018

2017

Ákvörðun 3/2017 Viðskiptaboð fyrir áfengi á RÚV 2016 – 3. mars 2017

Ákvörðun 1/2017 Kostun RÚV á dagskrárefni – 7. febrúar 2017

2016

Ákvörðun 7/2016 vegna viðskiptaboða fyrir áfengi á RÚV – 15. ágúst 2016

Ákvörðun 4/2016 Rof á þættinum Melodifestivalen með auglýsingum á RÚV – 11. júlí 2016

Álit 1/2016 Auglýsingahlutfall innan hverrar klukkustundar í Söngvakeppninni 2016 á RÚV – 11. júlí 2016

Ákvörðun 2/2016 Viðskiptaboð fyrir áfengi á RÚV – 11. mars 2016

2015

Ákvörðun 1/2015 Sýning á efni sem ekki er við hæfi barna fyrir vatnaskil á RÚV – 2. febrúar 2015

2014

Álit 2/2014 Umfjöllun um einkalíf barns í hljóðvarpsþættinum Grínistar hringborðsins á Rás 2  – 5. mars 2014

2013

Ákvörðun 2/2013 Birting auglýsinga í dagskrá sem er ætluð börnum yngri en 12 ára á RÚV – 23. september 2013

2011

Bréf fjölmiðlanefndar vegna sýningar á efni sem ekki er talið við hæfi barna – 11. nóvember 2011