Skráður fjölmiðill

Mannlíf

  • Nafn miðils
    Mannlíf / Mannlíf.is
  • Fyrirsvars- og ábyrgðarmaður
    Jón Trausti Reynisson
  • Heimilisfang
    Aðalstræti 2, 101 Reykjavík
  • Sími
    415 2050
  • Kennitala
    480115 0580
  • Netfang
    mannlif [hjá] mannlif.is

Ritstjórnarstefna

Mannlíf er daglegur veffréttamiðill með tímaritshluta.

Ritstjórnarstefna Mannlífs er áhugadrifin og efnið almenns eðlis. Hún hefur það að markmiðið að opna þjóðfélagsumræðuna og gera hana aðgengilega öllum hópum. Höfuðmarkmið er að sem flestir Íslendingar hafi aðgang að faglegri og heiðarlegri blaðamennsku við sitt hæfi, á forsendum almannahagsmuna frekar en sérhagsmuna.

Mannlíf er óháður miðill, í dreifðri eignaraðild, og ótengdur hagsmunaöflum í viðskiptum og stjórnmálum.

Meðal fastra efnisflokka Mannlífs eru umfjallanir um fólk, heiminn, menningu, peninga, pólitík, landið og sport.

Mannlíf birtir einnig umfjallanir um óformlega þjóðfélagsumræðu, í stíl klassískra slúðurdálka dagblaða, í vel aðgreindum efnishluta.

Sömuleiðis birtir Mannlíf skoðanagreinar sem aðgreindar eru frá fréttaefni.

Hugsanlegar kynningar eða viðskiptaboð í formi umfjallana geta eingöngu birst í vel aðgreindum og skilgreindum sérhluta þar sem gagnsæi ríkir um fjármögnun.

Mannlíf greinir frá hugsanlegum hagsmunatengslum sem upp kunna að koma í umfjöllunum, til dæmis ef fjallað yrði um starfsmenn eða starfsemi miðilsins.

Reglur Mannlífs um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Upplýsingar um eignarhald og fleira uppfærðar 16. maí 2025.
Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði uppfærðar 19. júní 2025.